Illugi ætlar að kynna breytingar á RÚV á næstu dögum

illugi-gunnarsson.jpg
Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ætl­ar að gera grein fyrir því á næstu dögum hvernig hann telji að „Rík­is­út­varpið get­i best náð mark­miðum sínum sem við viljum að það upp­fylli, hvernig það getur sinnt því hlut­verki sem það ­gegnir í sam­fé­lag­inu á sem far­sælastan hátt og hvernig starf­sem­i ­Rík­is­út­varps­ins þarf að vera háttað til þess að svo megi verða“. Þetta kem­ur fram í grein sem Ill­ugi skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar ræðir Ill­ugi skýrslu nefnd­ar um starf­semi og rekstur Rík­is­út­varps­ins (RÚV) sem nýverið kom út og þá upræð­u ­sem sprottið hafi upp í kjöl­fari birt­ingu hennar um hlut­verk og stöð­u ­fyr­ir­tæk­is­ins. Í nefnd­inni sátu Eyþór Arn­alds, sem var for­maður henn­ar, Guð­rún Ögmunds­dótt­ir ­sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Svan­björn Thorodd­sen hjá KPM­G.  

Ill­ugi segir skýrsl­una ekki hafna yfir gagn­rýni þótt að mik­il­vægt sé að þær upp­lýs­ingar sem hún­ inni­haldi hafi komið fram. Aðal­at­riðið varð­andi fram­tíð RÚV sé þó ekki ­rekstr­ar­vandi eða erfið skulda­staða. „Það sem mestu máli skiptir hvað fram­tíð­ina varðar er hið breytta neyslu­mynstur og tækni­fram­farir sem blasa við öllum fjöl­miðl­um. Áhorf á sjón­varp, einkum línu­lega dag­skrá, hefur til að mynda ­dreg­ist mjög mikið sam­an, mest í yngri ald­urs­hóp­un­um[...]Í ljósi þessa þarf ekki frjótt ímynd­un­ar­afl til að sjá að óbreytt skipan mála, hvort sem er hjá ­Rík­is­út­varp­inu eða öðrum fjöl­miðl­um, er ekki meit­luð í stein“.

Auglýsing

Ætlar að leggja til óbreytt útvarps­gjald

Í skýrslu um RÚV, sem kynnt var í lok októ­ber, segir m.a. að ­á­ætl­anir RÚV, sem fyr­ir­tækið vinnur eft­ir, geri ráð fyrir því að það ­fái hærra útvarps­gjald en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varpi árs­ins og að lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga hverfi úr efna­hag RÚV. Gangi þessar for­send­ur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyr­ir­tækið er rekið í dag ósjálf­bær.

Ill­ugi hefur þeg­ar ­stað­fest að hann ætli að leggja fram frum­varp á þingi um að útvarps­gjaldið verð­i ó­breytt á næsta ári. Hann seg­ist hins vegar ekki hafa lagt til að líf­eyr­is­skuld­bind­ingum verði lyft af Rík­is­út­varp­inu.

Breytt neyt­enda­hegðun

Í skýrslu ­nefnd­ar­innar um RÚV kom fram að hún taldi mik­il­vægt að end­ur­skoða þjón­ustu­hlut­verk RÚV í ljósi þeirra miklu breyt­inga sem orðið hafa á neyt­enda­hegð­un, sem kom­a ­meðal ann­ars fram í miklum sam­drætti í áhorfi á hefð­bundna sjón­varps­dag­skrá, ­sér­stak­lega hjá ungu fólki.

Í skýrsl­unni var birt ­skýr­ing­ar­mynd þar sem kemur fram að heild­ar­á­horf fólks á Íslandi á aldr­in­um 18-49 ára á sjón­varp dróst saman á árunum 2009-2015 um tæp 36 pró­sent í heild og var sam­drátt­ur­inn í áhorfi á línu­lega dag­skrá 47 pró­sent. Alls hefur áhorf á sjón­varp minnkað um 28 pró­sent frá árinu 2009 og hjá RÚV hefur sam­drátt­ur­inn verið tæp 18 pró­sent.

Sam­dráttur í áhorf­i á fréttir 2009 – 2015 var tæp 17 pró­sent og enn meiri í ald­urs­hópnum 18-49 ára, eða 32 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None