Ríkissjóður niðurgreiðir millilandaflug til landsbyggðar um hundruð milljóna

Tveir sjóðir verða stofnaðir til að styðja við millilandaflug til annarra staða en Keflavíkur. Ríkið ætlar að leggja allt að 300 milljónir í þá árlega í þrjú ár.

Flugvél
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands hefur ákveð­ið, að til­lög­u ­Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, að stofna tvo sjóð­i, ­Mark­aðs­þró­un­ar­sjóð og Áfanga­staða­sjóð, með það að mark­miði að koma á reglu­leg­u milli­landa­flugi um aðra flug­velli en Kefla­vík­ur­flug­völl. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, hefur fengið það hlut­verk að und­ir­búa stofnun sjóð­anna.

Heild­ar­upp­hæð beggja sjóða verður allt að 300 millj­ónir króna árlega í þrjú ár. Sjóð­irnir eiga að „virka hvetj­andi á er­lenda sem inn­lenda aðila og fram­lag þeirra vera við­bót við fram­lag ann­arra ­þró­un­ar­að­ila“. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps sem for­sæt­is­ráð­herra ­skip­aði í maí síð­ast­liðnum og hafði það hlut­verk að koma með til­lögur um hvernig koma mætti á reglu­legu milli­landa­flugi á aðra flug­velli en Kefla­vík.

Í frétta­til­kynn­ingu sem for­sæt­is­ráðu­neytið hefur sent frá sér vegna þessu segir að gert sé „ráð fyrir að fram­lag rík­is­ins til sjóð­anna mun­i skila sér til baka í formi skatt­tekna en ætla má að beinar skatt­tekjur af t­veimur flugum á viku allt árið yrðu um 300-400 millj­ónir króna árlega sem ­rík­is­sjóður myndi njóta áfram að loknu þriggja ára starfs­tíma­bili sjóð­ana“.

Auglýsing

Stofnun sjóð­anna byggir á skýrslu starfs­hóps sem ­for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í maí síð­ast­liðnum til að koma með til­lögur um hvern­ig koma mætti á reglu­legu milli­landa­flugi á aðra flug­velli en Kefla­vík. Mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar er að sjóð­irnir hafi hvetj­andi áhrif á erlenda sem inn­lenda aðila. Fram­lag sjóð­anna á að vera við­bót við fram­lag ann­arra þró­un­ar­að­ila og greið­ast eftir að flug er haf­ið, nánar til­tekið þegar lág­marks­tíma­bili hefur verið náð og svo mán­að­ar­lega eftir það. 

Starfs­hóp­ur­inn var þannig skip­að­ur: Matth­ías Páll Ims­land, til­nefndur af ­for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, for­maður starfs­hóps­ins, Arn­heiður Jóhanns­dótt­ir, til­nefnd af Eyþingi, Björn Ingi­mars­son, til­nefndur af Aust­ur­brú, Elín Árna­dótt­ir, til­nefnd af Isa­via, Ingvar Örn Ingv­ars­son, til­nefndur af Íslands­stofu, Mar­í­a Hjálm­ars­dótt­ir, til­nefnd af Aust­ur­brú, Val­gerður Gunn­ars­dótt­ir, til­nefnd af at­vinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son, til­nefnd­ur af Mark­aðs­stofu Norð­ur­lands og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, til­nefnd af inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None