Segir flugvallarvini hafa haldið uppi miklu áróðursstríði í gegnum fjölmiðla

Framkvæmdastjóri Valsmanna segir flugvallarvini hafa fengið að fara fram með rangar fullyrðingar og villandi nafngiftir. Endurteknar rangfærslur hafi sannfært hluta almennings og suma stjórnarmálamenn.

Flugvél
Auglýsing

Brynjar Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Vals­manna hf. sem standa að upp­bygg­ingu á Hlíð­ar­end­areit, segir að svo­kall­aðir flug­vall­ar­vinir hafi feng­ið að halda fram röngum full­yrð­ing­um, vill­andi nafn­giftum og yfir­lýs­ingum í gegn­um ­fjöl­miðla sem ekki fá stoð í gögnum og samn­ing­um. Þar hafi verið haldið upp­i­ ­miklu áróð­urs­stríði fyrir því að flug­braut 06/24 væri neyð­ar­braut. „Söm­u rang­færslum hefur verið haldið fram aftur og aftur gagn­rýn­is­laust í fjöl­miðl­u­m þar til hluti almenn­ings, og jafn­vel sumir stjórn­mála­menn, hafa byrjað að trú­a þeim sem stað­reyndum máls­ins.“

Þetta kom fram í máli Brynjars á opnum fundi um upp­bygg­ing­u ­í­búð­ar­hús­næðis í Reykja­vík í morg­un.

Staðið til að loka braut­inni frá 2009

Auglýsing

Mik­ill styr hefur staðið um fram­kvæmdir Vals­manna á Hlíð­ar­end­areitn­um, en þar stendur til að byggja 600 íbúðir auk atvinnu­hús­næð­is. Til að fram­kvæmd­irnar geti haft sinn gang þarf að loka flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, sem heitir einnig norð­austur suð­vest­ur­-braut og hefur á liðn­um árum iðu­lega verið nefnd neyð­ar­braut í opin­berri umræð­u. 

Lok­un braut­ar­innar hefur staðið árum sam­an. Árið 2005 und­ir­rit­uðu þá­ver­andi borg­ar­stjóri Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dóttir og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra Sturla Böðv­ars­son sam­komu­lag um sam­göngu­mið­stöð sem rísa skyldi í Vatns­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þá­ver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­and­i ­borg­ar­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­göngu­mið­stöð við enda brautar 06/24. 

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­aði Hanna Birna, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­þykkt um að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl. Þeg­ar því yrði lokið átti að til­kynna um lokun braut­ar­inn­ar. Í des­em­ber 2013 óskað­i inn­an­rík­is­ráðu­neytið eftir því að und­ir­bún­ingur yrði hafin að lokun flug­braut­ar­inn­ar, ­með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögnu­nefndin myndi skila ­nið­ur­stöðum sín­um. Skýrslu hennar var skilað fyrr á þessu ári og nið­ur­staða ­nefnd­ar­innar leysti ekki deilur um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Á­kvörðun á grund­velli til­lagna hennar liggur enn ekki fyr­ir.

Fram­kvæmdir við jarð­vinnu á Hlíð­ar­end­areit eru þegar hafn­ar. ­Sam­göngu­stofa hefur hins vegar ekki viljað leyfa verk­tökum að kom­a ­bygg­inga­krönum fyrir á svæð­inu. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði í fréttum Stöðvar 2 á mið­viku­dag að ríkið væri ekki að standa við sinn hluta ­samn­ings varð­andi Rekyja­vík­ur­flug­völl og skipu­lag í Vatns­mýr­inni. Ákvörð­un ­Sam­göngu­stofu hefði veru­leg áhrif á fram­kvæmdir á svæð­inu og væri að valda verk­tökum fjár­hags­legu tjóni.Til setndur að byggja upp 600 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis á Hlíðarendareitnum.

Flug­braut notuð sem víg­lína í deilu um flug­völl­inn

Brynjar var mjög harð­orður í fram­sögu sinni í dag. Hann ­sagði til­veru Reykja­vík­ur­flug­vallar vera algjör­lega óháða norð­vestur suð­aust­ur-flug­braut­inni. „Þessi flug­braut er notuð sem víg­lína í deilu um til­vist Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. Rang­túlk­anir um ­mik­il­vægi henn­ar, hvort sem er fyrir völl­inn í heild sinni, sjúkra­flug eða rang­nefni eins og að kalla braut­ina neyð­ar­braut hefur verið end­ur­tekið efni í fjöl­miðlum lands­manna.

Þessar deilur stefna nú upp­hafi bygg­inga­fram­kvæmda á Hlíð­ar­end­areit í óvissu með til­heyr­andi skaða fyrir fjölda aðila. Stað­reynd­in er sú að Hlíð­ar­end­areitur getur og mun byggj­ast upp í sátt við Reykja­vík­ur­flug­völl. Það er ennþá tími til að snúa mál­inu á rétta braut og ­forða mála­ferlum með til­heyr­andi fjá­hags­skaða fyrir lóð­ar­eig­end­ur, verk­taka, ­fjölda hönn­uða og Reykja­vík­ur­borg. En ekki síst fyrir ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fær ekki rúm­lega 400 litlar íbúðir inn á íbúða­mark­að­inn verði þessi deila ekki leyst. Og loks fyrir rík­is­sjóð því það er hann sem mun þurfa að bera skaða­bóta­á­byrgð­ina af því að hafa skor­ast undan því að standa við und­ir­rit­aða samn­inga.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None