Íslendingar undir fimmtugu fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju - Hinir eldri á móti

9555631404_e663c5b735_z.jpg
Auglýsing

Tveir af hverjum þremur Íslend­ingum (65 pró­sent) á aldr­in­um 18-49 ára sem tekur afstöðu til aðskiln­aðar ríkis og kirkju er fylgj­andi hon­um. Hjá þeim sem eru 50 ára og eldri, og taka afstöðu, eru fleiri á móti aðskiln­aði (57 pró­sent) en ­fylgj­andi honum (43 pró­sent). Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar sem Frétta­blaðið birti dag.

Nið­ur­stöð­urnar sýna að tæp­lega helm­ingur Íslend­inga, 48 ­pró­sent, styður aðskilnað ríkis og kirkju, 39 pró­sent eru and­vígir, tólf ­pró­sent óákveðnir og tvö pró­sent svara ekki. Þegar allir aðspurðir sem tóku af­stöðu eru taldir saman voru 55 pró­sent þeirra fylgj­andi aðskiln­aði en 45 ­pró­sent á móti. Mun fleiri karlar eru fylgj­andi aðskiln­aði en konur en ­meiri­hluti er fyrir aðskiln­aði hjá báðum kynj­um, þegar horft er ein­vörð­ungu á þá sem tóku afstöðu.

Könn­unin var gerð eftir lag­skiptu úrtaki og var svar­hlut­fall 65,8 pró­sent.  

Auglýsing

Nið­ur­stöður könn­unar Frétta­blaðs­ins sýna tölu­vert aðra nið­ur­stöð­u en könnun Gallup, sem birt var í októ­ber. Sam­kvæmt henni sögð­ust mun fleiri, eða 55,5 pró­sent lands­manna , vera hlynntir aðskiln­aði og að stuðn­ingur hefð­i ­auk­ist tölu­vert á milli ára. Könn­unin sýndi einnig að 23,9 pró­sent lands­manna voru and­vígir aðskiln­aði. Stuðn­ingur við aðskilnað var mestur hjá ­stuðn­ings­mönnum Pírata en minnstur hjá stuðn­ings­mönnum stjórn­ar­flokk­anna.

Þjóð­kirkjan hefur átt í vök að verj­ast í almennri umræð­u und­an­farin ár vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot innan kirkj­unn­ar, and­stöðu hluta hennar gegn einum hjú­skap­ar­lögum þar ­sem hjóna­band er skil­greint milli tveggja ein­stak­linga, ekki manns og konu, og hins svo­kall­aða sam­visku­frelsis presta til að ­meina sam­kyn­hneigðum að gift­ast í kirkju. Auk þess hefur verið mikið umræða um þann ­kostnað sem ríkið ber af rekstri Þjóð­kirkju, en alls fara um fimm millj­arð­ar­ króna af skattfé og sókn­ar­gjöldum á ári í að reka þá starf­semi sem Þjóð­kirkj­an sinn­ir.

Íslend­ingum sem skráðir eru í Þjóð­kirkj­una hefur hef­ur ­fækkað jafn og þétt á und­an­förnum árum. Árið 1992 voru 92,2 pró­sent lands­manna ­skráðir í hana. Í dag er það hlut­fall 73,8 pró­sent. Þeim íslensku rík­is­borg­urum sem kusu að standa utan­ ­Þjóð­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­ustu ald­ar­mót. Í byrjun þessa árs voru þeir 86.357 tals­ins. Þeim hefur því fjölgað um rúm­lega 55 þús­und á 15 árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None