Segja tvo áhrifavalda á leigumarkaði: Uppkaup leigufélaga og Airbnb

Útlit er fyrir að engar nýbyggðar íbúðir komi á leigumarkað á næstu tveimur árum að sögn hagfræðideildar Landsbankans.

reykjavík
Auglýsing

Á síð­ustu miss­erum hafa tveir þættir haft mikil áhrif á leigu­mark­að­inn, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ann­ars vegar hafa áhrif mikil upp­kaup fyr­ir­tækja á íbúðum sem síðan eru ætl­aðar til útleigu og hins vegar hefur áhrif stór­aukin útleiga íbúða til ferða­manna. Þessir þættir virka í sitt hvora átt, hið fyrr­nefnda eykur fram­boð hefð­bund­ins leigu­hús­næðis en hið síð­ar­nefnda dregur úr fram­boð­i. 

Þetta kemur fram í grein­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans  sem fjallar um stöð­una á leigu­mark­aði. Hag­stofan greindi nýlega frá því að mikil fjölgun hefur orðið í hópi leigj­enda í kjöl­far hruns­ins og hlut­fall þeirra hækkað úr 12,8 pró­sentum í ríf­lega 20 pró­sent

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans segir að svo virð­ist sem eft­ir­spurn eftir leigu­hús­næði sé mun meira en fram­boð­ið. Þar af leið­andi sé staða leigj­enda til­tölu­lega veik. Þá hafi ekki verið byggt mikið af hús­næði ætlað til útleigu, þótt áform séu uppi um slíkt. Rík­is­stjórnin lýsti yfir bygg­ingu 2.300 leigu­í­búða á næstu 4 árum í tengslum við gerð kjara­samn­inga í vor. „Út­lit er fyrir að þau áform munu tefj­ast eitt­hvað, t.d. verður varla lokið við bygg­ingu neinna íbúða á næsta ári og verður tæp­lega á árinu 2017,“ segja sér­fræð­ingar Lands­bank­ans.

Auglýsing

Í grein­ing­unni segir að það hafi færst í vöxt að fyr­ir­tæki, bæði í eigu verð­bréfa­sjóða og ein­stak­linga, kaupi íbúðir í þeim til­gangi að leigja þær út. Upp­haf­lega hafi félög fyrst litið til íbúða mið­svæðis en það hafi breyst. „Þessi ­starf­semi hefur þrengt tölu­vert að hefð­bundn­um ­sölu- og kaupa­mark­aði fast­eigna og eflaust stuðl­að að verð­hækk­unum með auk­inni eft­ir­spurn. Íbúð­ir ­sem hingað til hafa skipt um hendur á nokk­urra ára milli­bili hverfa þannig úr hefð­bund­inni veltu og fara í útleigu.

Á síð­ustu árs­fjórð­ungum hefur 5-8% af íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem ein­stak­lingar hafa selt farið til fyr­ir­tækja og er þetta hlut­fall mun hærra mið­svæðis í Reykja­vík. Gróft áætlað er þarna um 250-300 íbúðir að ræða sem árlega hverfa úr velt­u ­með þessum hætti. Þessar íbúðir stækk­a ­leigu­mark­að­inn og því til við­bótar kaupa ­leigu­fé­lögin vænt­an­lega einnig íbúðir frá öðrum ­fyr­ir­tækj­u­m,“ segir í grein­ing­unni.

Á móti vegur mikil aukn­ing skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna. Hag­fræði­deildin vísar til nýlegrar skýrslu Háskól­ans á Bif­röst um leigu­starf­semi til ferða­manna. Sam­kvæmt skýrsl­unni er um fjögur pró­sent hús­næðis í Reykja­vík skráð á leigu­síð­unni vin­sælu Air­bnb og hefur fjölgað mun meira en fram­boði hót­el­her­bergja. „Þarna er greini­lega um mjög umfangs­mikla ­starf­semi að ræða og ekki er ólík­legt að fjöldi íbúða í þessu mengi sé mun meiri en hefur numið fjölg­un ­leigu­í­búða sem leigu­fé­lög bjóða fram. Hátt nýt­inga­hlut­fall á hót­elum í borg­inni bendir til þess að þessi starf­semi hafi verið nauð­syn­leg við­bót við það gisti­rými sem er fyrir hendi til þess að hægt sé að anna eft­ir­spurn.“

Þá segir í grein­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans að skipt­ing leigu- og eign­ar­mark­aðar sé svip­aður hér­lendis og á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Flestir búa í eigin hús­næði í Nor­egi og þar á eftir koma Ísland og Finn­land. Að með­al­tali leigðu 27 pró­sent ein­stak­linga á Norð­ur­lönd­unum árið 2013 en hlut­fallið var 23 pró­sent á Íslandi.   

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None