CIA: Íslamska ríkið kann að hafa fleiri árásir undirbúnar

Yfirmaður bandarískur leyniþjónustunnar reiknar með að Íslamska ríkið hafi undirbúið fleiri hryðjuverkaárásir.

John Brennan, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, ræðir við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu.
John Brennan, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, ræðir við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu.
Auglýsing

John Brenn­an, yfir­maður banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar CIA, telur hryðju­verka­árás­irnar í París á föstu­dag­inn ekki vera ein­stæður atburður og segir hugs­an­legt að Íslamska ríkið hafi einnig und­ir­búið sams­konar árásir ann­ar­stað­ar. Leyni­þjón­ustur í Evr­ópu eigi erfitt með að fylgj­ast með hugs­an­legum hryðju­verka­mönnum vegna þess að fylgj­ast þarf með svo mörgum

Reuters greindi frá þessu í gær og hafði eftir Brennan að það væri fólk af evr­ópskum upp­runa sem þyrfti að fylgj­ast með. „Vinir okkar í Evr­ópu eiga við stór verk­efni að etja þessa stund­ina því svo margir Evr­ópu­búar hafa ferð­ast til Sýr­lands og Írak og til baka. Það reynir á getau þeirra til að fylgj­ast með þessu fólki.“

Auglýsing

Jafn­vel þó Íslamska ríkið hafi þegar lýst ábyrgð á hryðju­verka­árás­unum í París vill Brennan ekki full­yrða að upp­lýs­ingar leyni­þjón­ust­unnar bendi þess. Hryðju­verkin í París og í árásinni á far­þega­þot­una, sem fórst með 224 um borð í Egypta­landi 31. okt­o­ber, beri hins vegar hand­bragð íslamskra öfga­manna.

John BrennanÍ gær hót­aði Íslamska ríkið árás á Was­hington, höf­uð­borg Banda­ríkj­anna. Brennan segir það líta út fyrir að öfga­menn­irnir hafi und­ir­búið fleiri hópa sem geta framið hryðju­verk á Vest­ur­lönd­um. „Ég mundi gera ráð fyrir að þetta sé ekki eina árásin sem Íslamska ríkið hefur í hyggju. Leyni­þjón­ustur í Evr­ópu og víðar vinna hörðum höndum að því að kom­ast til botns í þessu.“

Talið er að allt að fimm þús­und Evr­ópu­búar hafi farið til Sýr­lands til að berj­ast síðan árið 2011. Um 1.400 þeirra hafa franskt rík­is­fang en aðeins 900 hafa snúið aftur heim til Frakk­lands. Frönsk yfir­völd hafa merkt á bil­inu tíu til 20 þús­und manns sem hugs­an­lega öryggisógn. 

„Við erum komin að því að leyni­þjón­ust­urnar anna ekki meiru. Þær gera ráð fyrir að eitt­hvað ger­ist en vita ekki hvenær eða hvar,“ er haft eftir Nathalie Gou­let, yfir­manni rann­sókn­ar­nefndar franska þings­ins um hryðju­verka­sam­tök, á vef Reuters.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None