Pútín vill hefna fyrir hryðjuverk um borð í farþegaþotunni

Forseti Rússlands ætlar að efla loftárásir rússneska hersins í Sýrlandi og hefur fyrirskipað alríkislögreglunni að hafa hendur í hári þeirra sem bera ábyrgð á hryðjuverkum.

Vladimír Pútín á fundinum með yfirmönnum hermála í Rússlandi í Moskvu í dag.
Vladimír Pútín á fundinum með yfirmönnum hermála í Rússlandi í Moskvu í dag.
Auglýsing

Vla­dimír Pút­in, for­seti Rúss­lands, hefur heitið því að Rússar muni efla loft­árásir sínar á Íslamska ríkið í Sýr­landi og hefja alþjóð­lega leit að söku­dólg­unum sem grönd­uðu rúss­nesku far­þega­þot­unni yfir Sína­í-skaga í Egypta­landi í síðsta mán­uði. Rann­sókn stjórn­valda í Kreml bendir til þess að hryðju­verka­menn hafi komið sprengju fyrir um borð í vél­inni. Reuters greinir frá þessu.

„Við munum finna þá hvar sem þeir halda sig og refsa,“ sagði Pútín á fundi með yfir­mönnum her­mála sem sýnt var beint frá í sjón­varpi í dag. Þar til nú hafa Rússar ekki gefið mikið fyrir skýr­ingar vest­rænna stjórn­valda um að hryðju­verka­menn hafi verið að verki og lagt áherslu á að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­inn­ar. 224 lét­ust þegar far­þega­þot­unni var grand­að 31. októ­ber.

Seint í gær­kvöldi til­kynnti Alex­ander Bortnikov, yfir­maður alrík­is­lög­reglu rúss­neska sam­bands­rík­is­ins, að rann­sóknin hefði leitt í ljós að merki um grun­sam­legt sprengi­efni hafi fund­ist í flaki far­þega­þot­unnar og á eigum far­þeg­anna. „Sam­kvæmt grein­ingu sér­fræð­inga okkar sprakk heima­gerð sprengja […] um borð í vél­inni sem varð til þess að þotan fór í sundur á flugi. Það skýrir hvers vegna skrokkur vél­ar­innar dreifð­ist um svo stórt svæð­i,“ sagði Bortnikov. „Við getum sagt með óyggj­andi hætti að um hryðju­verk var að ræða.“

Auglýsing

Pútín sagði á fundi sínum með yfir­mönnum her­mála í Rúss­landi að um einn „blóð­ug­asta atburð í nútíma­sögu Rúss­lands“ væri að ræða og skip­aði flug­hernum að efla loft­árásir sínar í Sýr­landi til að svara árásinni á ferða­lang­ana um borð í far­þega­þot­unni. „Hern­aður flug­hers okkar í Sýr­landi getur ekki ein­fald­lega haldið áfram. Hann þarf að efla þannig að glæpa­menn­irnir skilji að hefnd sé óhjá­kvæmi­leg,“ sagði Pútín.

Reuters hefur eftir frönskum rík­is­starfs­manni að Rússar hafi þegar aukið við loft­árásir sínar gegn Íslamska rík­inu í Raqqa í norð­an­verðu Sýr­landi. Heim­ild­ar­mað­ur­inn segir Reuters að það sé til marks um að Rússar séu þegar farnir að hafa áhyggur af ógn­inni sem stafar af Íslamska rík­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None