95 prósent lækna í Aleppo hafa flúið, dáið eða verið fangelsaðir

Einn læknir er á hverja sjö þúsund íbúa, og enginn geðlæknir eða sálfræðingur er eftir

Tveir læknar flytja særða konu milli staða í Aleppo fyrir þremur árum síðan.
Tveir læknar flytja særða konu milli staða í Aleppo fyrir þremur árum síðan.
Auglýsing

Ein­ungis 50 læknar og 200 hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru nú í Aleppo, stærstu borg Sýr­lands, sam­kvæmt nýrri skýrslu mann­rétt­inda­sam­taka lækna (Physici­ans for Human Rights), sem Newsweek greinir frá. Ein­göngu er einn tauga­lækn­ir, einn hjarta­læknir og einn kven­kyns kven­sjúk­dóma­læknir í borg­inni sam­kvæmt rann­sókn­inni, og hvorki geð­lækn né sál­fræð­ing að finna. 

Árið 2010 var einn læknir fyrir hverja 800 ein­stak­linga í borg­inni, en nú er hlut­fallið einn læknir á hverja 7.000 ein­stak­linga. Fólki í borg­inni hefur á sama tíma fækkað úr tveimur millj­ónum árið 2010 í rúm­lega 300.000 í ár. Til sam­an­burðar var hlut­fall lækna við ein­stak­linga einn læknir á tæp­lega 300 ein­stak­linga á Íslandi árið 2011

Frá því að stríðið braust út í Sýr­landi fyrir fjórum árum síðan hafa 95 pró­sent lækna flúið frá Aleppo, verið drepnir eða verið fang­els­að­ir, sam­kvæmt skýrsl­unni. Innan við þriðj­ungur af spít­ölum borg­ar­innar eru enn opn­ir, enda hafa stjórn­völd herjað á þá með loft­árásum og öðrum sprengju­árásum meira en 45 sinn­um, segja lækn­arn­ir. 

Auglýsing

„Við sjáum þetta sem hrylli­legt for­dæmi fyrir það sem gæti orðið mjög áhrifa­ríkt vopn í stríðs­rekstri,“ segir Michele Heisler, einn höf­unda skýrsl­unnar og pró­fessor við háskól­ann í Michig­an. „Þegar farið er að herja á spít­ala svo að fólk geti hvorki veitt né notið heil­brigð­is­þjón­ustu er það lævísk leið til að sá skelf­ing­u.“ 

Flestar árásir hafa verið gerðar á spít­ala í Aleppo, en árásir á spít­ala eru engu að síður vanda­mál um allt Sýr­land og 686 heil­brigð­is­starfs­menn hafa verið drepnir frá því í mars 2011. 

Við fram­kvæmd skýrsl­unnar var rætt við 24 heil­brigð­is­starfs­menn í Sýr­landi auk starfs­fólks á öllum 10 spít­öl­unum sem eru opn­ir. Heisler segir við Newsweek að það geti verið að fleiri læknar séu í borg­inni, en þori ekki að tala um það. Sam­kvæmt vitn­is­burði ein­hverra búi þeir á spít­al­anum þar sem þörfin sé sífelld, og að margir þurfi að fram­kvæma aðgerðir sem þeir hafi aldrei áður gert. „Fyrir mörg okkar er hug­myndin um að sér­stak­lega sé reynt að sækja að fólki sem leitar heil­brigð­is­þjón­ustu og þeim sem eiga að vera að hjálpa og heila, það er ákveð­inn hryll­ingur í því. Það er mjög yfir­þyrm­andi leið til að skapa ótta og getur látið fólk gefa upp alla von.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None