Sigríður: Bjarni Ben sendir „stórt fokkmerki“

sigríður ingibjörg ingadóttir
Auglýsing

Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, er stór­orð í garð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Face­book-­síðu sinni í dag. Hún segir Bjarna senda þeim sem detta út úr námi en vilji svo ljúka því síðar „stórt fokk­merki“ með mál­flutn­ingi sín­um. 

Bjarni átti orða­stað við Odd­nýju Harð­ar­dótt­ur, sam­flokks­konu Sig­ríðar Ingi­bjarg­ar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á þingi í morg­un. Þar var til umfjöll­unar fram­halds­skóla­nám, og fjölda­tak­mark­anir sem settar hafa verið á fólk yfir 25 ára aldri. Sig­ríður Ingi­björg seg­ist hafa „skömm á þess­ari mann­fjand­sam­legu stefn­u,“ sem stjórn­völd stundi.

Bjarni sagði á þingi í morgun að grunn­hugs­unin á bak við breytta stefnu stjórn­valda sé sú að það hafi skort fjár­magn á bak við hvern nem­anda í fram­halds­skóla­kerf­inu. Auk þess hafi náms­fram­vinda verið ófull­nægj­andi þegar Ísland sé borið saman við önnur ríki. Það hafi tekið lengri tíma að koma nem­endum til háskóla­náms og með því að for­gangs­raða fólki yfir 25 ára aldri síð­ast sé verið að bregð­ast við þessu. Fólk yfir 25 ára aldri hefði önnur úrræði, eins og frum­greina­deild­ir, til þess að ljúka stúd­ents­prófi. 

Auglýsing

Oddný sagði það arfa­vit­laust bæði fag­lega og fjár­hags­lega að meina nem­endum aðgang að opin­berum fram­halds­skól­um. Það leiði til þess að færri fari í frekara nám, og að einkum bitni þessar breyt­ingar á fólki á lands­byggð­inni. Komið hefur fram að nem­endum í fram­halds­skóla­námi hafi fækkað um 700 milli ára. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None