Héraðsdómur segir ekkert hafa gefið til kynna hópnauðgun

heradsdomur
Auglýsing

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði í morgun fimm unga menn af ákæru um hópnauðg­un, en þeim hafði verið gefið að sök að hafa nauðgað sextán ára gam­alli stúlku í sam­kvæmi vorið 2014. Einn mann­anna var hins vegar dæmdur fyrir að hafa tekið upp mynd­band af athæf­inu, og fyrir það var hann dæmdur í mán­að­ar­fang­elsi, skil­orðs­bund­ið, og til að greiða kon­unni 500 þús­und krónur í miska­bæt­ur. 

Dóm­ur­inn komst að þeirri niðu­stöðu að ekk­ert hafi komið fram í mál­inu sem gefi til kynna að stúlkan hafi ekki verið sam­þykk því sem fram fór. 

Stúlkan kærði menn­ina í maí síð­ast­liðn­um, en hún lagði sjálf fram mynd­bands­upp­töku þegar hún lagði fram kæruna. Menn­irnir voru allir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í kjöl­far­ið, og sættu ein­angrun á meðan á því stóð. Menn­irn­ir, sem þá voru 17 til 19 ára gaml­ir, geng­ust allir við því að hafa haft sam­farir við stúlk­una en sögð­ust telja að hún væri því sam­þykk. 

Auglýsing

Mynd­bands­upp­tak­an, sem einn mann­anna var dæmdur fyrir að hafa gert, var í fyrra talin styðja fram­burð stúlkunnar í mál­inu. Lög­reglan taldi þetta og not­aði sem rök­semd fyrir því að hneppa ætti menn­ina í gæslu­varð­hald, og Hér­aðs­dómur Reykja­víkur tók undir að upp­takan styddi fram­burð stúlkunn­ar. Þá var tekið fram í úrskurð­inum að rann­sóknin væri skammt á veg komin og eftir ætti að ræða við fjölda vitna sem gætu gefið nán­ari upp­lýs­ingar um mik­il­væg atriði. Tugir ein­stak­linga voru yfir­heyrðir vegna máls­ins. Við rann­sókn máls­ins kom fram í fjöl­miðlum að mönn­unum hefði ekki borið saman um atburð­inn og atburða­rás honum tengda. 

Dóm­ur­inn hefur ekki verið birtur opin­ber­lega, en Morg­un­blað­ið og Vísir hafa dóm­inn undir hönd­um. Í frétt blaðs­ins kemur fram að sam­ræmi hafi verið milli fram­burðar allra mann­anna á meðan þeir hafi setið í gæslu­varð­haldi. Fram­burður stúlkunnar hafi verið breyti­legur um sum atriði og komið hafi fram í máli hennar að hún myndi sumt illa. Hún hafi sagt að hún hafi gefið mönn­unum til kynna að hún vildi ekki vera með þeim en ekki sagt það berum orð­um, en síðar hafi hún sagt að hún gæti hafa sagt það berum orðum en myndi það ekki. 

Þá segir í dómnum að stúlkan „virð­ist“ fyrst hafa talað um nauðgun eftir að mynd­bands­upp­tök­una bar á góma. Þar segir einnig að þrjú vitni hafi sagt að stúlkan hefði sagt að ef mynd­bandið sem tekið var upp færi í dreif­ingu myndi hún segja að um nauðgun hafi verið að ræða. Einnig segir í dómnum að gögn um skoðun neyð­ar­mót­töku styðji ekki fram­burð stúlkunn­ar, og því sé ósannað að menn­irnir hafi gerst sekir um nauðg­un. 

Sveinn Andri Sveins­son, verj­andi eins mann­anna, segir við DV að hann geri ráð fyrir því að menn­irnir muni „sækja sinn rétt“ vegna gæslu­varð­halds­ins, og að hugs­an­lega verði konan kærð fyrir rangar sak­ar­gift­ir. 

Erlendur Þór Gunn­ars­son, verj­andi ann­ars ungu mann­anna, segir hins vegar við Kjarn­ann að umbjóð­andi hans hafi aldrei íhugað að kæra hana. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None