Vigdís „gæti ekki verið rólegri“

Fresta þurfti fundi fjárlaganefndar fram yfir helgi vegna langs fundar ríkisstjórnarinnar. Ljóst að áætlun þingsins mun ekki standast.

Formaður fjárlaganefndar lofar þjóðinni að fjárlög verði samþykkt fyrir áramót.
Formaður fjárlaganefndar lofar þjóðinni að fjárlög verði samþykkt fyrir áramót.
Auglýsing

Fresta þurfti boð­uðum fundi fjár­laga­nefndar Alþing­is, þar sem ræða átti til­lögur vegna ann­arrar umræðu fjár­laga og fjár­auka­laga, vegna þess að rík­is­stjórn­ar­fund­ur, þar sem sama mál var rætt, dróst á lang­inn. 

Fund­ur­inn í fjár­laga­nefnd átti að hefj­ast klukkan tvö í dag en var sem fyrr segir frestað. Hann hefur verið boð­aður klukkan hálf­níu á mánu­dags­morgun í stað­inn, að sögn Vig­dísar Hauks­dótt­ur, for­manns nefnd­ar­inn­ar.

Vig­dís segir í sam­tali við Kjarn­ann að rík­is­stjórnin hafi lokið við sínar til­lögur á fund­inum í dag, og því hefði verið hægt að halda fund í fjár­laga­nefnd nú seinni part­inn. Hins vegar séu margir lands­byggð­ar­þing­menn í fjár­laga­nefnd og það hefði verið ósann­gjarnt ef hún hefði verið með hörku og haft fund­inn klukkan hálf­fjögur í dag. 

Auglýsing

Sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins átti önnur umræða um fjár­lögin að fara fram næst­kom­andi fimmtu­dag, en ljóst er orðið að það verður ekki þar sem fjár­laga­nefnd hefur ekki enn fengið til­lögur rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Það er bara aug­ljós­lega komin sein­kun“ segir Vig­dís. „Ég er algjör­lega óstressuð yfir því. Ég get lofað þér og þjóð­inni því að það verður búið að afgreiða fjár­lögin fyrir ára­mót.“ Hún segir að verið sé að skapa úlfúð með tali um að umræðan stand­ist ekki starfs­á­ætlun þings­ins, og stjórn­ar­and­staðan hugsi ekki um dag­skrá þings­ins þegar verið sé að stunda mál­þóf. „Ég gæti ekki verið rólegri yfir þessu.“ 

Ell­efu þing­funda­dagar eru eftir af þing­inu fram að jólum sam­kvæmt áætl­un­inni, þar af eru tveir dagar sér­stak­lega áætl­aðir í umræður um fjár­lög­in. Þriðja og síð­asta umræðan á að fara fram þriðja des­em­ber næst­kom­andi, en það mun vænt­an­lega ekki stand­ast held­ur.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None