Ingibjörg: Páll Winkel fer undan í flæmingi

Fangelsi---Kv--abryggju.jpg
Auglýsing

Páll Win­kel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, fer undan í flæm­ingi og það bendir ein­dregið til þess að hann geti ekki svarað fyrir gjörðir sín­ar. Þetta segir Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­son­ar, í svari sem hún sendi Kjarn­an­um. Ingi­björg skrif­aði grein í Frétta­blaðið á föstu­dag þar sem hún sak­aði Pál um mann­rétt­inda­brot gegn föng­um, meðal ann­ars manni henn­ar. Páll tjáði sig um grein­ina við Kjarn­ann á laug­ar­dag og hafn­aði ásök­unum Ingi­bjarg­ar. 

Ingibjörg KristjánsdóttirIngi­björg segir að við­horf og hegðun Páls sé í engu sam­ræmi við eðli­lega fram­komu opin­berra starfs­manna, og segir að hann geti enn beðist afsök­unar á þessu „frum­hlaupi“ sínu ef honum sé umhugað um að vera tek­inn alvar­lega. 

Svar Ingi­bjargar í heild sinni má lesa hér að neð­an. 

Auglýsing

Páll Win­kel fang­els­is­mála­stjóri gerir til­raun til að svara grein minni sem birt­ist í Frétta­blað­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Í grein­inni vek ég athygli á ómak­legu fram­ferði Páls gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum á Kvía­bryggju á opin­berum vett­vangi nýver­ið. Ann­ars vegar að hann hefur ítrekað komið fram í fjöl­miðlum og tjáð sig um einka­mál­efni fanga. Hins vegar að hann segir ósatt varð­andi þetta sama mál. 

Ég tek það fram að hann nefnir ekki nöfn skjól­stæð­inga sinna, en hann sér til þess að les­endur átta sig á því hverja hann er að tala um, sem er brot á ákvæði um þagn­ar­skyldu í lögum um fulln­ustu refs­inga. Við­ur­lög við því er allt að 1 árs fang­elsi, sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lög­um, og allt að 3ja ára fang­elsi ef hann hefur gert það sér til ávinn­ings.  

Ég upp­lýsti í grein minni að hann fór með rangt mál þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað af mál­inu fyrr en skömmu áður en hann tjáði sig um það í fjöl­miðl­um, og stað­hæfði jafn­framt að hann hefði stoppað málið af í fram­hald­inu.

Í við­tali við Kjarn­ann síð­ast­lið­inn laug­ar­dag víkur Páll sér undan því að svara ásök­unum um að hann brjóti á skjól­stæð­ingum sín­um. Að hann hafi farið með rangt mál. Hann ber því við að hann geti ekki svarað aðstand­endum fanga hverjum fyrir sig þar sem þeir skipta hund­ruð­u­m?! Ekki verður annað skilið á Páli en að hann telji eðli­leg­ast að aðstand­endur fari með mál sín í gegnum Afstöðu, sem eru sam­tök fanga. 

Ef Páll Win­kel for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar ákveður að opin­bera einka­mál skjól­stæð­inga sinna og fara með rangt mál í fjöl­miðlum varð­andi mál­efni þeirra, liggur þá ekki beint við fyrir mig sem aðstand­anda, að mæta for­stjór­anum og mót­mæla aðför hans á opin­berum vett­vangi? Það stendur hvergi skrifað í skýin að for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar skuli ekki svara alvar­legum ásök­unum nema að þær komi til hans í gegnum Afstöð­u. 

Það er ein­kenni­legt að Páll skuli ekki svara mál­inu efn­is­lega. Það að hann fer undan í flæm­ingi bendir ein­dregið til þess að hann geti ekki svarað fyrir gjörðir sín­ar. Þær hljóta því að standa óhagg­aðar sem sann­leik­ur­inn í mál­in­u. 

Það kemur einnig und­ar­lega fyrir sjónir að for­stjór­inn noti orða­lagið “Kon­an, sem kveðst maki refsi­fanga, sakar mig um ýmis brot……” Hvað á hann við með því? Er hann að gefa í skyn að ég sé ekki eig­in­kona Ólafs, eða liggur efinn í því að eig­in­mað­ur­inn minn sé refsi­fangi? Eða er hann ein­fald­lega að tala niður til mín sem aðstand­anda?

Við­horf og hegðun Páls er í engu sam­ræmi við eðli­lega fram­komu opin­bers starfs­manns, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­un­ar. Ef Páli er umhugað um að vera tek­inn alvar­lega sem maður sem ber hag skjól­stæð­inga sinna fyrir brjósti, og berst fyrir breyttum áherslum í fang­els­is­mál­um, þá bendi ég Páli á að hann getur enn dregið orð sín til baka og beðist afsök­unar á þessu frum­hlaupi sín­u. 

Þetta er afstaða mín sem aðstand­anda og borg­ara.

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None