Fimmti hver viðmælandi eða umfjöllunarefni í íslenskum fréttum er kona

statistik
Auglýsing

Konur eru 20 pró­sent þeirra sem talað er við eða fjallað um í fréttum hér á landi. Karlar eru því 80 pró­sent umfjöll­un­ar­efna og við­mæl­enda. 

Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar alþjóð­legrar rann­sókn­ar, Global Media Mon­itor­ing Project­ (GMMP) sem kynnt var í dag. Helstu frétta­miðlar í 114 lönd­um voru vaktaðir 25. mars 2015 og meðal ann­ars kannað hversu oft var talað við eða fjall­að um kon­ur, í hvers konar fréttum og í hvers konar hlut­verk­um, sem og hlut­ur frétta­kvenna og frétta­karla. GMMP er umfangs­mesta og lang­lífasta rann­sókn á hlut karla og kvenna í fréttum og hefur verið gerð á fimm ára fresti síðan 1995. Ísland tók nú fullan þátt í annað skipti. Greindar voru fréttir í RÚV útvarpi og sjón­varpi, Stöð 2, Bylgj­unn­i, Morg­un­blað­inu, Frétta­blað­inu og í net­miðl­unum dv.is, eyj­an/­press­an.is, kjarn­inn.is, mbl.is, vís­ir.is og rúv.­is.  

Eft­ir­bátar hinna Norð­ur­land­anna

Í nið­ur­stöð­unum kom einnig fram að 31 pró­sent frétta í íslenskum miðlum var fluttur af eða skrif­aður af kon­um. 69 pró­sent þeirra voru fluttar af eða skrif­aðar af körl­u­m. Frétta­kon­ur flytja sam­kvæmt því hlut­falls­lega færri fréttir hér á landi en að jafn­aði í þeim 114 löndum sem könn­unin náði til en í heild eru sam­svar­andi hlut­föll 37 pró­sent konur og 63 pró­sent karlar. Í Finn­landi voru 44 pró­sent frétt­anna skrif­aðar eða fluttar af frétta­kon­um, í Dan­mörku 32 pró­sent og í Nor­egi og Sví­þjóð 35 pró­sent. 

Auglýsing

Í til­kynn­ingu vegna birt­ingar á nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar segir að frétta­konur á íslenskum miðlum hafi verið mun lík­legri en frétta­karlar til að tala við eða fjalla um kon­ur. Í þriðj­ungi frétta (33 pró­sent) eftir konur var talað við eða fjallað um konur en í 8 pró­sent frétta eftir karla. GMMP ­rann­sóknir hafa bent til þess að konur væru fremur umfjöll­un­ar­efni eða við­mæl­endur í fréttum um t.d. dæg­ur­mál, heil­brigð­is- eða félags­mál, en síður í því sem gjarnan eru kall­aðar „harðar frétt­ir“, eins og póli­tík, efna­hags­mál, og ­glæpir og afbrot.  Ekki fund­ust skýr­ar vís­bend­ingar um það í íslensku frétt­un­um. Konur voru t.d. við­mæl­endur í ríf­lega 30 pró­sent frétta um efna­hags­mál og í rúm­lega 20 pró­sent frétta um póli­tík eða í meira mæli en ætla mætti út frá heild­ar­fjölda þeirra í fréttum almennt. Ekki var heldur að sjá að frétta­konur hér á landi fjöll­uðu síður um „hörð“ mál en frétta­karl­ar. Þannig segja/­skrifa frétta­konur 42 pró­sent frétt­anna um póli­tík þótt þær ­séu mun færri en karl­arn­ir."

Nið­ur­stöð­urn­ar verða kynntar nánar á Jafn­rétt­is­þingi 2015, sem haldið verður mið­viku­dag­inn 25. nóv­em­ber 2015 á Hilton Reykja­vík Nor­dica

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None