Engin niðurstaða um endurupptöku Geirfinnsmáls fyrr en á næsta ári

heradsdomur
Auglýsing

Nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu er ekki að vænta á þessu ári eins og von­ast hafði verið til. End­ur­upp­töku­nefnd bíður enn eftir gögnum í mál­inu og á meðan svo er fæst ekki nið­ur­staða í mál­ið. Þetta stað­festir Björn L. Bergs­son, for­maður end­ur­upp­töku­nefnd­ar, við Kjarn­ann. End­ur­upp­töku­nefnd tekur end­an­lega ákvörðun um það hvort málið verði tekið upp að nýju. 

Settur rík­is­sak­sókn­ari í mál­inu, Davíð Þór Björg­vins­son, hefur gefið það út að honum þyki rök fyrir því að mál Sæv­ars Ciesi­elskis, Tryggva Rún­ars Leifs­son­ar, Alberts Klahns Skafta­sonar og Guð­jóns Skarp­héð­ins­sonar verði tekin upp á nýjan leik. Hann mælti hvorki með né gegn því að taka upp mál Erlu Bolla­dóttur aftur og Krist­ján Viðar Við­ars­son fór ekki fram á end­ur­upp­töku máls síns. 

Eftir að Davíð Þór hafði skilað sínu áliti fengu þau öll, eða ætt­ingjar þeirra, að skila inn umsögn um mál­ið. Það gerðu allir áður en frestur til þess rann út í lok sept­em­ber. 

Auglýsing

End­ur­upp­töku­nefndin óskaði einnig eftir við­bót­ar­gögn­um, sem starfs­hópur inn­an­rík­is­ráð­herra um Guð­mund­ar- og Geir­finns­málið hafði aflað þegar skýrsla var unnin um mál­ið, en henni var skilað árið 2013. Björn sagði frá því í sam­tali við RÚV í októ­ber að stefnt væri að því að nið­ur­staða feng­ist fyrir ára­mót, en ekki væri hægt að fast­setja dag­setn­ingu meðan enn væri verið að afla gagna. Það er enn stað­an, og Björn seg­ist ekki geta nefnt neina dag­setn­ingu sem miðað sé við, því nefndin sé háð öðrum um að fá gögn. 

Sex­menn­ing­arnir voru öll dæmd í Hæsta­rétti árið 1980. Sævar var dæmdur í sautján ára fang­elsi og Krist­ján Viðar sextán ára, Tryggvi var dæmdur í þrettán ára fang­elsi og Guð­jón tíu ára fang­elsi. Erla var dæmd í þriggja ára fang­elsi og Albert í árs fang­elsi. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None