Sigmundur mun ekki biðjast afsökunar á þátttöku Íslands í Íraksstríðinu

sigmundur david
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd íhuga ekki að biðj­ast afsök­unar á þátt­töku sinni í inn­rásinni í Írak, með því að vera á hinum svo­kall­aða lista hinna vilj­ugu þjóða. Þetta má lesa út úr svari Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns VG. 

Svan­dís spurði Sig­mund að því hvort hann hygð­ist biðj­ast afsök­unar í ljósi þess að Tony Bla­ir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafi beðist afsök­unar á rangri upp­lýs­inga­gjöf til bresks almenn­ings í aðdrag­anda stríðs­ins. Hún spurði hvort Sig­mundur ætl­aði að gang­ast fyrir sam­bæri­legri afsök­un­ar­beiðni stjórn­valda til Íslend­inga, sökum þess að sömu blekk­ingum hafi verið beitt til að skipa íslenska rík­inu í hóp stuðn­ings­ríkja stríðs­ins. 

Sig­mundur segir í svari sínum að ekki verði séð af gögnum um málið að íslensk stjórn­völd hafi haft nokkra aðkomu að ákvörðun um árás Banda­ríkj­anna og banda­manna þeirra á Írak. Þvert á móti sýni gögnin að skrán­ing Íslands á lista hinna vilj­ugu hafi verið að frum­kvæði banda­rískra stjórn­valda, og að þeim hafi verið gert ljóst að Ísland væri her­laust rík­i. 

Auglýsing

„Það er skoðun ráð­herra að ekki hefði átt að heim­ila banda­rískum stjórn­völdum að skrá Ísland á lista sem tengdur var við hern­að­ar­að­gerðir og að eftir birt­ingu list­ans hefði verið æski­legt að Íslend­ingar hefðu áréttað bet­ur, opin­ber­lega, að vera á list­anum fæli ekki í sér stuðn­ing við hern­að­ar­að­gerðir eins og full­trúa banda­rískra stjórn­valda hafði verið gert ljóst þegar hann afhenti list­ann,“ segir í svari Sig­mund­ar. 

„Ljóst má vera að ef til greina kæmi, af hálfu íslenskra stjórn­valda, að biðj­ast afsök­unar á ein­hverjum þeim hern­að­ar­að­gerðum sem ráð­ist hefur verið í með það að mark­miði að steypa ein­ræð­is­herrum af stóli koma vart önnur átök til álita en árásin á Líbýu þar sem rík­is­stjórn Íslands var virkur þátt­tak­andi í ákvörðun um hern­að­ar­að­gerð­ir,“ sagði Sig­mundur einnig í svar­inu, og að árásin á Líbýu árið 2011 væri eina til­vikið þar sem Ísland hefði haft beina aðkomu að ákvörðun um hern­að­ar­í­hlut­un. Hann ætl­aði þó ekki að leggja mat á hvort til­efni væri fyrir afsök­un­ar­beiðni vegna þess. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None