Fyrstu spár benda til að Danir hafi sagt nei

lars lokke
Auglýsing

Sam­kvæmt útgöngu­spá Danska sjón­varps­ins sem birt var laust eftir klukkan átta, að dönskum tíma, og kjör­stöðum hafði verið lokað vilja Danir vera óbundnir af samn­ingi Evr­ópu­sam­bands­ins um sam­starf í dóms-og lög­reglu­málum og semja sér­stak­lega um þessa mála­flokka við önnur ESB ríki.

 Sam­kvæmt útgöngu­spá Danska sjón­varps­ins merktu 53.3% kjós­enda við nei á kjör­seðl­inum en 46.7% við já. Kjör­sókn var meiri en fyr­ir­fram var búist við.

Ef úrslit kosn­ing­anna verða þau að meiri­hluti kjós­enda hafi sagt nei, verða Danir að gera sér­sam­komu­lag um þá hluta ESB samn­ings­ins sem varða lög­reglu-og dóms­mál. Danir hafa haft slíkan samn­ing frá árinu 1993 en vegna breyt­inga innan Evr­ópu­sam­bands­ins fellur sá samn­ingur nú úr gildi. Nei úrslitin myndu hafa það í för með sér Danir verða að semja uppá nýtt um áður­nefnda þætti, þar vegur sam­starfið um Europol, Evr­ópu­lög­regl­una, þyngst. Öll ríki Evr­ópu­sam­bands­ins yrðu að sam­þykkja slíkan sér­samn­ing vegna Dan­merk­ur, það tæki langan tíma og slíkt sam­þykki ekki sjálf­gef­ið. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur verið í for­ystu þeirra flokka sem vilja segja nei. Helstu rök þeirra eru þau að með því að segja já séu Danir að afsala sér sjálf­stæði í ýmsum mála­flokkum og alltof margar ákvarð­anir sem varði þjóð­ar­hag verði teknar í Brus­sel. Nei sinnar telja að auð­velt yrði að semja um Europol sam­starf­ið, það sé ekki áhyggju­efni.

Auglýsing

Stjórn­ar­flokk­ur­inn Ven­stre,Sós­í­alde­mókrat­ar, Íhalds­flokk­ur­inn, Radika­le, og Sós­íal­íski Þjóð­ar­flokk­ur­inn styðja já leið­ina, sem nefnd hefur verið val­leið. Í henni felst að Dan­mörk und­ir­gengst 22 atriði ESB samn­ings­ins en und­an­skilur 28 atriði. Þau kæmu til kasta danska þings­ins varð­andi breyt­ing­ar. Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að veiga­mikil mál yrðu ekki til lykta leidd í þing­inu, í slíkum til­vikum fengi þjóðin að kjósa. Já fylgj­endur hafa í kosn­inga­bar­átt­unni hamrað á því að nauð­syn­legt sé fyrir Dani að kjósa val­leið­ina, segja já. Ann­ars sé hætta á að Dan­mörku verði eins­konar auk­hjól undir ESB vagn­in­um, án áhrifa. Þar vegi lög­reglu­sam­starfið þyngst en einnig mörg önnur atriði.

Í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unnar naut mál­staður já sinna meira fylg­is. Sá munur hefur smám saman farið minnk­andi. Í síð­ustu könn­unum sem gerðar voru fyrir kosn­ingar hafði dæmið snú­ist við. Fylgj­endur þess að segja nei voru komnir með smá for­skot.

Stjórn­mála­skýrendur hafa bent á að Lars Lökke Rasmus­sen og já sinnar hafi lagt allt of mikla áherslu á hræðslu­á­róður í kosn­inga­bar­átt­unni. Slíkt hafi ekki farið vel í Dani.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None