Halldór Bjarkar segist ekki hafa breytt vitnisburði gegn því að ákæra yrði niðurfelld

Halldór Bjarkar Lúðvígsson
Halldór Bjarkar Lúðvígsson
Auglýsing

Hall­dór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka, segir að það hafi aldrei verið rætt milli­ hans og starfs­manna sér­staks sak­sókn­ara að fallið yrði frá ákæru gegn hon­um ­fyrir vitn­is­burð í hinu svo­kall­aða CLN-­máli líkt og Hreiðar Már Sig­urðs­son, ­fyrrum for­stjóri Kaup­þings, hélt fram fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morg­un­. Hall­dór Bjarkar segir að hann heldur aldrei breytt fram­burði sínum í mál­inu né hafi hann búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum þegar hann seldi hluta­bréf skömmu fyr­ir­ hrun.

Þeir sem eru ákærðir í CLN-­málinu fengu aðgang að tölvu­póst­u­m Hall­dórs Bjark­ars og ann­ars vitnis eftir að hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst á kröfu þeirra þar um í síð­ustu viku. Hreiðar Már fór yfir inni­hald tölvu­pósta Hall­dórs Bjark­ars við upp­haf aðal­með­ferðar máls­ins í morg­un. Í end­ur­sögn mbl.is á ræðu hans segir að Hreiðar Már hafi sagt að fram­burður Hall­dórs Bjark­ars í mál­inu væri rangur og að hann hafi snúið fram­burði sínum við í miðju máli. Auk þess hafi Hall­dór Bjarkar selt öll bréf sín í tveimur félög­um, meðal ann­ars Exista, vegna vit­neskju ­sinnar sem starfs­maður Kaup­þing. Hreiðar Már sagði að Hall­dór Bjarkar hafi verið í dag­legum sam­skiptum við Exista og því búið yfir meiri upp­lýs­ingum en almennir fjár­festar um stöðu félags­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari hefði tví­vegis ákært menn fyr­ir­ inn­herja­svik en það hafi ekki verið gert í til­felli Hall­dórs Bjark­ars. Þess­ar ­upp­lýs­ingar um við­skipti Hall­dórs Bjarkar og meint inn­herja­brot hans skipt­i höf­uð­máli varð­andi hvernig hann hefði breytt fram­burði sínum hjá sér­stök­um sak­sókn­ara og tek­ist að „sleppa við ákæru sér­­staks sak­­sókn­­ara og ­sitja á þýfi sín­u.“

Auglýsing

Hreiðar Már sagði að sölu­and­virði bréf­anna hefði ver­ið um fimm millj­óniir krona. Hall­dór Bjarkar hefði setið áfram á því and­virði og haldið áfram í fram­kvæmda­stjórn Kaup­þings og Ari­on banka, en Hall­­dór Bjark­ar ­starfar þar í dag sem fram­­kvæmda­­stjóri fjár­­­fest­inga­­banka­sviðs. Hreið­ar­ Már sagði Hall­dór Bjarkar hefði fengið um 150 millj­ónir króna í laun á þeim sjö árum sem liðin væru frá hruni.

Í sam­tali við Kjarn­ann í dag sagð­ist Hall­dór Bjark­ar aldrei hafa breytt fram­burði sínum í CLN-­mál­inu. „Það var aldrei rætt milli mín eða starfs­manna sér­staks sak­sókn­ara að fallið yrði frá ákæru á hendur mér fyr­ir­ vitn­is­burð í þessu máli og að mér vit­andi hafa þau við­skipti sem Hreiðar Már vísar til aldrei verið til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara, enda bjó ég aldrei yfir inn­herj­a­upp­lýs­ing­um.“ Hann mun bera vitni í mál­inu á mið­viku­dag.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hafa tveir menn fengið rétt­ar­vernd gegn ákæru í hrun­mál­um þar sem upp­lýs­ingar bentu til þess að þeir hafi brotið af sér, gegn því að þeir veittu sak­sókn­ara upp­lýs­ingar sem styrkti mála­til­búnað hans. Annar mann­anna, Rós­ant Már Torfa­son, hlaut slíka rétt­ar­vernd árið 2009. Hinn, Magnús Pálmi Örn­ólfs­son, hlaut rétt­ar­vernd­ina með bréfi frá rík­is­sak­sókn­ara í febr­úar 2014. Hann hafði áður haft rétt­ar­stöðu grun­aðs manns í Stím-­mál­inu svo­kall­aða. Þeir störf­uðu báðir fyrir Glitni fyrir hrun. Hall­dór Bjarkar hefur því ekki hlotið slíka rétt­ar­vernd.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None