Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fær 517 milljónir til viðbótar

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið benti á það í september að enn væru 1,2 milljarðar króna ósóttar í sjóðnum.

ferdamenn.jpg
Auglýsing

Fram­lög rík­is­ins til Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða verða aukin um 517 millj­ónir króna, þrátt fyrir að 1,2 millj­arður króna hafi legið óhreyfður í sjóðnum í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Millj­ón­irnar bæt­ast við sjóð­inn í fjár­lögum næsta árs, sam­kvæmt til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar. Auk þess hefur 850 millj­ónum verið bætt inn í sjóð­inn sam­kvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga fyrir árið sem er að líða. 

Iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neytið greindi frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum að við und­ir­bún­ing fjár­laga fyrir næsta ár hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­mun­ir“ eða 1,2 millj­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­um. Þessum fjár­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­kvæmd. 

Af þessum sökum var gert ráð fyrir 149 millj­óna króna fram­lagi til Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða í fjár­laga­frum­varpi næsta árs, en ráðu­neytið sagði þá að ákvarð­anir um frek­ari fram­lög yrðu teknar við með­ferð fjár­laga­frum­varps­ins, þegar búið væri að greina stöð­una. Kjarn­inn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um þessa grein­ing­u. 

Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur nú til 517 millj­ónir til við­bót­ar, svo að sjóð­ur­inn fái sam­tals 666 millj­ónir króna á næsta ári. 

850 millj­ónum bætt við í fjár­auka­lög­um 

Í fjár­lögum þessa árs var gert ráð fyrir 145,8 millj­óna króna fram­lagi í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. Þeirri upp­hæð mót­mælti stjórn­ar­and­staðan og sagði ljóst að upp­hæðin myndi ekki duga til og ljóst væri að bæta þyrfti við fjár­magni á fjár­auka­lög­um. 

Það hefur svo komið á dag­inn, en í frum­varpi til fjár­auka­laga fyrir árið í ár, sem er til með­ferðar á Alþingi nú, er lagt til að 850 millj­ónir króna til við­bótar verði settar í sjóð­inn. Auk þess bætt­ust 12,2 millj­ónir við í breyt­inga­til­lögu við aðra umræðu vegna þess að tekjur af gistin­átta­skatti voru meiri en áætlað var. 

Þetta 850 millj­óna króna fram­lag var til­kynnt strax í vor, eftir að rík­is­stjórnin ákvað að setja aukið fé í sjóð­inn. Fjár­laga­nefnd var kynnt þetta í vor. Meiri­hluti nefnd­ar­innar segir að það sé verk­klag sem sé til fyr­ir­mynd­ar, á meðan minni­hlut­inn gagn­rýnir þetta harð­lega. „Verið er að setja fjár­magn í verk­efni sem áttu að vera á fjár­lög­um. Með því að setja það í fjár­auka­lög er verið að brjóta lög um fjár­reiður rík­is­ins enda ekk­ert ófyr­ir­séð eða óvænt á ferð. Það að fjár­mála­ráð­herra kynni áformin fyrir fjár­laga­nefnd breytir engu þar um,“ segir í nefnd­ar­á­liti minni­hluta nefnd­ar­inn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None