Framlög til umboðsmanns Alþingis lækkuð um 13 milljónir

Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Auglýsing

Sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar við frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2016 verða fram­lög til emb­ættis umboðs­manns Al­þingis lækkuð um 13 millj­ónir króna frá því sem var fyr­ir­hugað að myndi renna til emb­ætt­is­ins á fjár­lögum þegar þau voru lögð fram í haust. Í stað 202,5 millj­óna króna fær umboðs­maður 189,5 millj­ónir króna.  Fram­lög til umboðs­manns hækka þó á milli ára í krónum talið. Á árinu 2015 fékk emb­ættið 174,5 millj­ónir króna sam­kvæmt fjár­lög­um. Fram­lag til umboðs­manns er því raun­hækkun upp á um 12,5 millj­ón­ir króna, að teknu til­liti til verð­bólgu.

Lækk­unin er rök­studd af meiri­hluta fjár­laga­nefndar með því að emb­ættið sé nú emb­ættið til húsa í Þórs­hamri við Templ­ara­sund sem er í eigu rík­is­ins en áður leigði emb­ættið skrif­stofu­hús­næði á almennum mark­aði og þá nam húsa­leiga rúmum 13 m.kr. Þar sem emb­ættið greiðir ekki lengur húsa­leigu er lagt til að fjár­heim­ild til hennar verði felld nið­ur."

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir, sem kynntu sam­eig­in­lega breyt­ing­ar­til­lögu sína við fjár­laga­frum­varpið í gær, leggja til að umboðs­mað­ur­ Al­þingis fái 15 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag við það sem áður var áætlað til­ að emb­ættið geti sinnt frum­kvæð­is­at­hug­un­um.

Auglýsing

Starfs­maður þing­flokks Pírata, Aðal­heiður Ámunda­dótt­ir, kall­aði skert fjár­fram­lög til umboðs­manns Alþingis aðför að emb­ætt­inu að hálfu fjár­veit­inga­valds­ins í stöðu­upp­færslu á Face­book í gær­kvöldi.



Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþing­is. Hann var end­ur­kjör­inn í starfið í des­em­ber 2011 til fjög­urra ára frá 1. jan­úar 2012. ­Skip­ana­tími hans rennur því út um næstu ára­mót og kjósa þarf um end­ur­kjör hans, eða nýjan umboðs­mann, áður en að sá tími er lið­inn. Tryggvi sat m.a. í þriggja ­manna rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði skýrslu sinni í apr­íl 2010.

Leka­mál­ið, Fiski­stofa og Seðla­bank­inn

Umboðs­maður Alþingis hefur verið tölu­vert í sviðs­ljós­inu á þessu ári. Í jan­úar birti hann nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, fyrr­ver­and­i inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stef­áns Eiríks­son­ar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herrann, sem þá hafði þegar sagt af sér emb­ætt­ið, hafi gengið langt út fyr­ir­ ­vald­svið sitt í mál­inu. Hún hafi haft ítrekuð og mikil afskipti af rann­sókn ­leka­máls­ins, sem snérist um leka þáver­andi aðstoð­ar­manns henn­ar, Gísla Freys ­Val­dórs­son­ar, á upp­lýs­ingum um um hæl­is­leit­endur til val­inna fjöl­miðla. Gísli Freyr hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir lek­ann í nóv­em­ber 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér embætti innanríkisráðherra vegna lekamálsins seint á árinu 2014. Hún baðst afsökunnar á framgöngu sinni í málinu.Í apríl birt­i ­um­boðs­maður álit í til­efni af kvörtun starfs­manna Fiski­stofu til emb­ætt­is­ins ­vegna ákvörð­unar Sig­urðar Inga Jóhans­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu til Akur­eyr­ar. Í áliti umboðs­manns segir að ­yf­ir­lýs­ingar og bréf Sig­urðar Inga til starfs­manna Fiski­stofu vegna ­flutn­ings­ins hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.

Í byrjun send­i ­um­boðs­maður Alþingis svo bréf til Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ­banka­ráði Seðla­banka Íslands, Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og ­stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna athug­unar sem hann hafði unn­ið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands­ ­vegna gruns um brot á reglum um gjald­eyr­is­höft. Í bréfi hans kemur m.a. fram að ­Seðla­banki Íslands hafði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við um­sýslu og sölu eigna til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. Umrætt einka­hluta­fé­lag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín all­ar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eign­ir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eign­ir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna ­sem félag­inu áskotn­að­ist. Í bréf­inu gagn­rýnir umboðs­maður einnig fram­kvæmd gjald­eyr­is­reglna seðla­bank­ans. 

Banka­ráð Seðla­banka Íslands ákvað á grund­velli þeirrar nið­ur­stöður að láta gera athugun á þessum málum.

Segir kerfið verja sig sjálf

Í síð­ustu viku var greint frá því að17 eft­ir­lits­stofn­anir rík­is­ins fái um 13.134 millj­ón­ir króna á næsta ári úr rík­is­sjóði. Það er 5,8 pró­sent meira en þær fengu á þessu ári, þegar 12.409 millj­ónir króna runnu til þeirra. Alls aukast útgjöld til­ ­eft­ir­lits­stofn­ana því um 725 millj­ónir króna á næsta ári. Umboðs­maður Alþingis er á með­al­ þess­arra eft­ir­lits­stofn­anna.

Guð­laug Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, ­sagði af þessu til­efni við Morg­un­blaðið að rík­is­stofn­anir sporni við sparn­að­i ­með öllum til­tækum ráð­um. „Það gengur erf­ið­lega að spara hjá stofn­un­um. Kerf­ið ver sig með öllum ráð­um. Það skortir skiln­ing á mik­il­vægi þess að gæta aðhalds í rík­is­fjár­málum og hafa í þessu til­felli ein­falt og skil­virkt eft­ir­lits­kerf­i. Þetta er útlagður kostn­aður skatt­greið­enda og það er líka í þessu fólg­inn ­mik­ill óbeinn kostn­aður fyrir atvinnu­lífið og fólkið í land­inu, eins og all­ir vita... Fjár­lögin eru ill­skilj­an­leg og það er iðu­lega verið að ræða smærri mál í stað þess að ræða stóru mál­in.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None