Fimm sinnum hafa fleiri flutt úr landi en í ár - „villandi og kjánalegt“ að mótmæla því

laugavegur reykjavik gongugata
Auglýsing

Aðeins fimm ár und­an­farin 30 ár hafa fleiri Íslend­ingar flutt frá land­inu en í ár, jafn­vel þótt aðeins liggi fyrir tölur um fyrstu þrjá árs­fjórð­unga árs­ins. Vill­andi og kjána­legt er að reyna að mót­mæla þessum töl­um. Þetta kemur fram í tíma­rit­inu Vís­bend­ing­u. 

„Sjaldan hafa fleiri flutt frá Íslandi (nettó = aðflutt­ir-brott­flutt­ir) á heilu ári en hafa flutt frá land­inu fyrstu þrjá árs­fjórð­ung­ana. Það er vill­andi og kjána­legt að reyna að mót­mæla því. [...] Það er líka mark­leysa að prófa töl­fræði­lega hvort mark­tækt fleiri hafi flutt á einu tíma­bili en öðru. Þeir eru ein­fald­lega fleiri eða færri,“ segir í tíma­rit­inu, sem stærð­fræð­ing­ur­inn Bene­dikt Jóhann­es­son stýr­ir.  

Í tíma­rit­inu eru teknar saman tölur um flutn­ing íslenskra rík­is­borg­ara að og frá land­inu und­an­farin 30 ár og hvernig hag­vöxtur var við­kom­andi ár og árið á und­an. „Taflan gefur til kynna að í góð­æri sé lík­legra að útstreymið sé minna en þegar á móti blæs. Tvö ár skera sig úr. Árin 1996 og 2015. Póli­tíkusar geta ­þráttað um þessa stað­reynd, en Hag­stof­an má aldrei láta undan þrýst­ingi og ­reyna að fegra nið­ur­stöður með rangri ­töl­fræði.“ 

Auglýsing

Tölur um aðflutta og brottflutta. Mynd úr Vísbendingu.

Þá segir í rit­inu að á nokk­urra ára fresti flytji miklu fleiri úr landi en komi til baka. Satt að segja séu fá ár þar sem fleiri flytji heim en út. Það sé verð­ugt við­fangs­efni félags­vís­inda­manna og stjórn­mála­fræð­inga að skýra hvers vegna fólk flytji. „Í því er hægt að nota gild­is­hlaðin orð eins og fólks­flótti, en miklu skiptir auð­vitað að tala um stað­reynd­ir. Á sínum tíma flúðu margir frá Aust­ur-Þýska­land­i vestur yfir, en fátítt var að menn vildu fara hina leið­ina. Engum datt í hug að velta því ­fyrir sér hvort þeir sem flúðu vestur væru ­mark­tækt fleiri en hin­ir, þeir voru ein­fald­lega miklu fleiri. Það var stað­reynd sem ekki þurfti að blanda neinni töl­fræði í.“ 

Hag­stofan segir engar mark­verðar breyt­ingar og ekki póli­tískan þrýst­ing

Í mann­fjölda­tölum frá Hag­stof­unni á dög­unum kom fram að 640 fleiri Íslend­ingar hafi flust frá land­inu á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins en fluttu til lands­ins. Þetta varð til­efni frétta­skrifa og Ásgeir Jóns­son hag­fræð­ingur sagði í Morg­un­blað­inu að það virð­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara vera á ferð­inni í fólks­flutn­ingum en venju­lega, þegar fólk flytur í kjöl­far kreppu, og að vís­bend­ingar séu um að margt háskóla­fólk flytji úr landi. Bat­inn á vinnu­mark­aði, sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyt­i. 

Í kjöl­far mik­illar umræðu sendi Hag­stofan frá sér frétt þar sem sagt var að engar mark­verðar breyt­ingar hafi átt sér stað á hlut­falli íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til og frá land­inu á mis­mun­andi ald­urs­bili árið 2015 borið saman við sam­bæri­legt hlut­fall áranna 1986 til 2014. Auk­inn fjöldi brott­fluttra sé ekki umfram það sem telja má eðli­lega sveiflu miðað við fyrri ár. „Þessi nið­ur­staða á við hvort sem horft er til búferla­flutn­inga hjá ein­stak­lingum eða kjarna­fjöl­skyld­um."

Því var velt upp, meðal ann­ars í pæl­ingu dags­ins í Kjarn­an­um, hvort þessi við­brögð Hag­stof­unnar hefðu komið til vegna póli­tísks þrýst­ings, en Hag­stofan heyrir undir for­sæt­is­ráð­herra. Því hafn­aði hag­stofu­stjóri í aðsendri grein í Kjarn­an­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None