Fréttablaðið með undir 50 prósent lestur í fyrsta sinn frá 2002

fréttablaðið
Auglýsing

Frétta­blaðið fer í fyrsta sinn undir 50 pró­sent lestur síðan snemma árs 2002 en er áfram mest lesna dag­blað lands­ins, líkt og það hefur verið frá því í febr­úar 2003. Við­skipta­blaðið mælist með mesta lestur sem blaðið hefur mælst með síðan að það kom aftur inn í mæl­ingar á árinu 2011. Þetta kemur fram í nýrri prent­miðla­könnun Gallup.

DV tekur stökk upp á við í nýrri prent­miðla­könnun Gallup og mælist nú með mesta lestur sem blaðið hef­ur ­mælst með frá því að gengið var frá kaupum Björns Inga Hrafns­sonar og ­með­fjár­festa hans á blað­inu í des­em­ber 2014. Lestur DV í nóv­em­ber mæld­ist 9,5 ­pró­sent og jókst um 1,9 pró­sentu­stig á milli mán­aða. Lestur blaðs­ins hef­ur ein­ungis einu sinni áður farið yfir níu pró­sent frá því að nýir eig­endur tóku ­form­lega við DV eftir að eft­ir­lits­að­ilar höfðu sam­þykkt kaupin fyrir um ári ­síð­an. Það var í júlí síð­ast­liðn­um. 

Vert er að taka fram að ­lestur prent­miðla hækkar oft í nóv­em­ber og des­em­ber, sem eru stærstu mán­uð­ir árs­ins í birtum aug­lýs­ing­um. Þannig er einnig nú því að DV, Frétta­tím­inn og Við­skipta­blaðið hækka öll mark­tækt í lestri á milli mán­aða. Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið standa hins vegar nán­ast í stað.

Auglýsing

DV spyrnir sér frá botn­inum

Athygli vekur að þeir t­veir toppar sem lestur DV hefur náð á und­an­förnu ári koma um svipað leyti og ­blaðið hefur ráð­ist í frídreif­ingu í mun stærra upp­lagi en vana­lega. Í lok jún­í var DV dreift frítt inn á tug­þús­und heim­ili. Þá var for­síðu­við­tal blaðs­ins við ­Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Í lok nóv­em­ber var síðan DV dreift frítt í stærsta upp­lagi í sögu DV. Þá var Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands­, í for­síðu­við­tali.

Ljóst er að DV höfð­ar­ frekar til eldri les­enda en þeirra yngri. Í ald­urs­hópnum 18-49 ára lesa 7,7 ­pró­sent lands­manna blað­ið.  

DV hefur því náð við­spyrn­u í lestri und­an­farna mán­uði, en blaðið náði sögu­legum botni í lestri í ágúst ­síð­ast­liðnum þegar 7,13 pró­sent þjóð­ar­innar lásu það. Lestur blaðs­ins hafð­i aldrei verið jafn lít­ill og þá í 40 ára sögu DV. Á meðan að hópur tengd­ur ­feðg­unum Reyni Trausta­syni og Jóni Trausta Reyn­is­syni átti DV, en þeir misst­u ­yf­ir­ráð yfir blað­inu í fyrra­haust, var lestur blaðs­ins vana­lega á milli 11 og 12 pró­sent.

Frétta­blaðið fer undir 50 pró­sent í fyrsta sinn frá 2002

Hin stóru tíð­indin í nýrri ­prent­miðla­könnun Gallup eru þau að Frétta­blaðið fer í fyrsta sinn undir 50 ­pró­sent lestur frá árinu 2002. Þá kom blaðið inn á 76 þús­und heim­ili í land­inu. Síðan þá hefur dreif­ing Frétta­blaðs­ins verið aukin og því er nú dreift frítt í 90 þús­und ein­tök­um inn á heim­ili lands­ins sex daga vik­unn­ar. Blaðið fór í gegnum mest­u út­lits­breyt­ingar sem blaðið hefur ráð­ist í í sögu sinni í ágúst­mán­uði en hef­ur haldið áfram að tapa lestri síðan þá. Lestur blaðs­ins hjá fólki undir fimm­tug­u er enn lægri. Nú lesa 45,2 pró­sent þeirra Frétta­blað­ið.

Við­skipta­blaðið á skriði

Við­skipta­blað­ið, ­sem er selt í áskrift og kemur út einu sinni í viku, hefur aukið tölu­vert við ­lestur sinn það sem af er þessu ári og í nóv­em­ber mæld­ist lestur á blað­inu 13,4 ­pró­sent. Það er mesti lestur sem það hefur verið með frá því að það kom aft­ur inn í mæl­ingar Gallup í júní 2011.  

Lest­ur Morg­un­blaðs­ins mælist nú 28,4 pró­sent, sem er mjög nálægt minnsta lestri sem ­blaðið hefur nokkru sinni mælst með. Morg­un­blaðið hefur misst um 35 pró­sent les­enda sinna á und­an­förnum sex árum. Sam­drátt­ur­inn hefur verið sér­stak­lega ­mik­ill hjá Íslend­ingum undir 50 ára, en nú lesa 19,4 pró­sent lands­manna í þeirra blað­ið. Morg­un­blaðið hefur verið mun oftar í frídreif­ingu á und­an­förn­um árum, sér­stak­lega á fimmtu­dög­um, en það var áður.

Frétta­tím­inn, ­sem fékk nýja eig­endur í síð­asta mán­uði, bætir aðeins við sig í lestri á milli­ ­mán­aða. Búist er við því að tölu­verðar breyt­ingar verði á Frétta­tím­anum frá og ­með ára­mót­um, þegar Gunnar Smári Egils­son og Þóra Tóm­as­dóttir taka við ­rit­stjórn blaðs­ins. Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir var í gær ráðin frétta­stjóri ­blaðs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None