Össur segir Illuga ekki sætt áfram í ríkisstjórn vegna RÚV

Össur
Auglýsing

„Þeg­ar ráð­herra nær ekki fram stefnu varð­andi lyk­il­stofnun þá er hon­um tæp­ast sætt lengur í rík­is­stjórn. Þá er hann orð­inn það sem stundum heitir á ensku máli, með leyf­i ­for­seta, lame duck.“

Þetta segir Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um Ill­uga Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Ólína Þor­varð­ar­dótt­ir, sam­flokks­kona Öss­ur­ar, spurði Össur um mat hans á stöðu Ill­uga í ljósi þess að frum­varp hans um RÚV muni lík­lega ekki nást út úr rík­is­stjórn. 

Illug sagði sjálfur í fréttum RÚV í gær­kvöldi að odd­vitar rík­is­stjórn­ar­innar meti það sem svo að ekki sé nægur stuðn­ingur í þing­flokkum Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks við frum­varp hans um óbreytt útvarps­gjald. Hann er samt von­góður um að frum­varpið verði afgreitt fyrir jól. 

Auglýsing

„Stjórn­skipu­lega hefur þetta leitt til stöðu sem er óvið­un­andi fyrir hæst­virtan mennta­mála­ráð­herra. Hann hefur upp­lýst það að hann hafi mótað stefnu í mál­efnum einnar helstu stofn­unar síns ráðu­neyt­is. Hann hefur lagt þá stefnu fyrir rík­is­stjórn­ina og það kemur í ljós að innan rík­is­stjórn­ar­innar þá nýtur hann ekki stuðn­ings fyrir stefn­unni. Í máli sem þessu þá á hann í raun­inni engan móralskan kost annan heldur en þann að segja af sér. Þannig lít ég á mál­ið,“ sagði Össur og Ólína tók undir með hon­um. 

Öss­ur ­rifj­aði upp dæmi af sjálfum sér sem utan­rík­is­ráð­herra. Á tíma hafi virst sem svo að honum tæk­ist ekki að koma fram stefnu sinn­i um fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu. „Þá gekk ég á fund Jóhönn­u ­Sig­urð­ar­dótt­ur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og sagði henni að ég mundi þá ekki sitja lengur í hennar ráðu­neyti. Menn verða að taka afleið­ingum sinnar stefnu og sinna gerða.“

Hins vegar væru ekki öll kurl til grafar komin í mál­inu og Össur telur að mál­inu sé ekki lok­ið. „Það er mögu­legt að hæst­virtur ráð­herra verði dreg­inn að landi áður en þriðju umræðu lýk­ur.“ Það að skilja hann eftir með málið jafn­gildi því að ýta honum út úr rík­is­stjórn, og hann trúi því ekki að það ger­ist. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None