Thorsil fær aftur frest til að greiða Reykjanesbæ gatnagerðargjöld

reykjanesbaerskilti.jpg
Auglýsing

Reykja­nes­bær og Thorsil gerðu í dag með sér sam­komu­lag um að fresta greiðslu Thorsil á gatn­ar­gerð­ar­gjöldum sem fyr­ir­tækið á að greiða sveita­fé­lag­inu til 15. mars 2016. Upp­haf­lega áttu gjöldin að greið­ast 30. sept­em­ber en Thorsil fékk þá frest til 15. des­em­ber, eða í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands

DV sagði frá því í októ­ber að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil, sem ætlar sér að byggja kís­il­málm­verk­smiðju í Helgu­vík, greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber s en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Honum hefur nú verið frestað aft­ur.

Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, vildi ekki upp­lýsa DV um hversu háa upp­hæð er um að ræða. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafn­ar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lán­um, aukast ekki á meðan að stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Auglýsing

Bygg­ing verk­smiðju Thorsil er mjög umdeild í Reykja­nesbæ og í ágúst sam­þykkti bæj­ar­ráð sveit­ar­fé­lags­ins að efna til íbúa­kosn­ingu í nóv­em­ber vegna henn­ar. Sam­hliða var hins vegar sam­þykkt að íbúa­kosn­ingin yrði bind­andi og Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar, sagði op­in­ber­lega að nið­ur­staða hennar skipti í raun engu máli.

Nið­ur­staða kosn­ing­ar­innar lá fyrir í byrjun des­em­ber. Kosn­inga­þátt­taka var mjög dræm, en ein­ungis 8,7 pró­sent þeirra sem máttu greiða atkvæði gerðu það. Það þýðir að ein­ungis þriðj­ungur þeirra um 2.800 manna sem skrif­uðu undir áskorun til bæj­ar­yf­ir­valda um að halda kosn­ing­una kaus. Alls voru 471 íbúar sem tóku þátt hlynntir breyt­ingu á deiliskipu­lagi í Helgu­vík tengt upp­bygg­ingu verk­smiðj­unnar en 451 á móti. Tólf skil­uðu auðu.

Reykja­nes­bær glímir við mik­inn skulda­vanda. Sveit­ar­fé­lagið er það skuld­settasta á land­inu. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Skulda­vand­inn er að stóru leyti til­kom­inn vegna fjár­fest­inga í hafn­ar­fram­kvæmdum við Helgu­vík sem sveit­ar­fé­lagið er í ábyrgð fyr­ir. Í til­kynn­ingu sem Reykja­nes­bær sendi til Kaup­hallar Íslands í októ­ber sagði að sveit­ar­fé­lagið væri í við­ræðum við helstu kröfu­hafa sína um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Eigi þær við­ræður að skila árangri sé nauð­syn­legt að sam­komu­lag náist við helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda". Ef samn­ingar um nið­ur­fell­ingu skulda nást ekki gæti komið til greiðslu­falls á skuldum sveit­ar­fé­lags­ins.

RÚV greindi frá því fyrr í dag að Reykja­nes­bær hefði ekki enn náð sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína. Í frétt RÚV segir að enn sé langt í land. 



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None