Birgitta biður Jón Gunnarsson afsökunar ef hún hefur móðgað hann og sært

birgitta jónsdóttir
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, hefur beðið Jón Gunn­ars­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, afsök­unar á því ef hún hafi móðgað hann eða sært þegar hún sagð­ist ekki hafa viljað sitja við hliðiná honum á Alþingi á síð­asta þing­vetri. Hún hvetur Jón einnig til þess að biðja sig, og Björk Guð­munds­dótt­ur, opin­ber­lega afsök­un­ar. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu frá Birgittu á Face­book í morg­un.



Auglýsing

Jón sagði sjálfur í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að ummæli sem hann lét falla um Björk Guð­munds­dóttur hafi kunnað að vera ósann­gjörn. 

Birgitta sagði frá því í gær­morgun að henni hefði lið­ið mjög illa þegar hún sat við hlið­ina á Jóni Gunn­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni atvinnu­vega­nefnd­ar, á síð­asta þingi. „[Ég] gerði allt sem ég gat til að fá að vera flutt. Mig lang­aði oft ekki í vinn­una því mér leið svo illa við hlið­ina á þessum mann­i.“

Hún hafði áður birt stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hún sagði að Jón myndi aldrei biðj­ast afsök­unar á sínum „dylgjum og mann­vonsku“ í garð Bjarkar Guð­munds­dóttur lista­manns.

Jón hafði áður sagt að hann skildi ekk­ert í Björk eftir að hún kall­aði for­menn stjórn­ar­flokk­anna sveitalubba í við­tali við Sky-­sjón­varps­stöð­ina, sagði hana daufa til augn­anna og velti því fyrir sér hvort hún borg­aði skatta hér­lend­is. Jón vakti athygli á ummælum Birgittu í þing­inu í gær og lýstu furðu sinni á þeim. 

Björk útskýrði sín ummæli í stöðu­upp­færslu á Face­book í gær og tók þar sér­stak­lega fram að hún greiddi sann­ar­lega skatta hér­lend­is.

Og nú hefur Birgitta beðið Jón afsök­unar á ummælum sín­um. Í stöðu­upp­færsl­unni segir hún:Í ljósi umræðum um mig og Jón Gunn­ars­son þá vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi: Ég bað ítrekað um að fá að skipta um sæti á síð­asta þing­vetri og það vita allir hjá yfir­stjórn þings­ins vegna þess hvernig Jón hag­aði sér gagn­vart mér, stöðugt að skjóta í mann ónotum án nokk­urs til­efn­is. Það hefur nákvæm­lega ekki neitt með póli­tík að gera. Ég er með þykkan skráp og allt það, en ófyr­ir­séð og stöðugt áreiti er þung­bært þegar maður er fastur við hlið­ina á ein­hverjum í margra klukkutíma atkvæða­greiðsl­um. En mér er eng­inn vor­k­un, það hafa það margir miklu meira skítt en ég og þetta mál snýst ekki um mig heldur þær dylgjur sem þing­mað­ur­inn við­hafði gagn­vart Björk sem hann hefur ekki sýnt neina til­burði til að biðj­ast afsök­unar á. Ég er alveg til­búin að biðja Jón Gunn­ars­son afsök­unar ef ég hef móðgað hann eða sært. Hann væri maður með meiri ef hann bæði Björk Guð­munds­dóttur opin­ber­lega afsök­un­ar. Jón Gunn­ars­son hér með bið ég þig inni­legrar afsök­unar á mínum hlut og ef orð mín hafa sært eða meitt þig. Ég ætla ekki með þetta inn í þing­sal eins og þú gerðir í gær enda aðrir og mik­il­væg­ari hlutir sem þar þarf að ræða um."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None