Mögulegur forsetaframbjóðandi fékk um níu milljónir frá forsætisráðuneytinu

Hrannar Pétursson
Auglýsing

Einka­hluta­fé­lag í eigu Hrann­ars Pét­urs­son­ar, sem íhugar nú for­seta­fram­boð fékk tæpar níu millj­ónir króna greiddar frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir ráð­gjöf á sviði upp­lýs­inga­mála. Hrannar var ráð­inn til­ ráðu­neyt­is­ins í des­em­ber 2014 til að stýra heild­ar­end­ur­skoðun á stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins í upp­lýs­inga- og ­sam­skipta­mál­um. Upp­haf­lega átt­i ráðn­ingin að vera til tveggja mán­aða en starfs­tími Hrann­ars í ráðu­neyt­in­u ­lengd­ist og hann starf­aði þar sem verk­efn­is­stjóri út októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Þetta kem­ur fram í svari Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manni Vinstri grænna, um sund­ur­lið­aðan ráðu­neyt­is­ins ­kostnað við sér­fræð­i-, ráð­gjaf­ar- og kynn­ing­ar­störf á árinu 2014 og 2015.

Greiðslur til­ ­fé­lags Hrann­ars, sem heitir G 47 ehf., eru næst hæstu greiðslur til ein­staks aðila sem ráðu­neytið greiddi fyrir slík störf á tíma­bil­inu. Mest fékk félagið Meltún­ ehf., í eigu lög­manns­ins Eiríks Svav­ars­son­ar, vegna vinnu fyrir ráð­gjafa­hóps um af­nám hafta. Alls greiddi for­sæt­is­ráðu­neytið félagi Eiríks 9,1 milljón króna ­fyrir þá ráð­gjöf.

Auglýsing

Stjórn­ar­maður í Seðla­bank­anum fékk sex millj­ónir

Þá fékk félagið Fram­lag ehf. 6,2 millj­ónir króna vegna vinn­u ­fyrir ráð­gjafa­hóp um afnám hafta. Fram­lag er í eigu Jóns Helga Egils­son­ar, sem situr meðal ann­ars í stjórn Seðla­banka Íslands sem full­trú­i Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Sigurður Hannesson hefur starfað mikið fyrir stjörnvöld á undanförnum árum.Sea­pool ehf., félag í eigu Sig­urðar Hann­es­son­ar, fékk þrjár millj­ónir króna greiddar fyrir að vinna fyrir sér­fræð­inga­hóp um höf­uð­stólslækkun hús­næð­is­lána. Sig­urður leiddi þann hóp og var auk þess í lyk­il­hlut­verki í fram­kvæmda­hópi stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Greiðslur vegna þeirra starfa eru ekki til­greindar í sund­ur­liðun for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna ­fyr­ir­spurnar Katrín­ar.

Þá fékk Stafna­sel slf., félag í 99 pró­sent eigu Hall­dór­s Benja­míns Þor­bergs­son­ar, 6,7 millj­ónir króna fyrir verk­efni vegna verð­trygg­inga­mála. Hall­dór Benja­mín, sem er hag­fræð­ing­ur, vakti athygli þegar hann stýrði hálf­tíma langri kynn­ingu á skulda­nið­ur­færsl­unni, hinni svoköll­uðu Leið­rétt­ingu, í nóv­em­ber í fyrra. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None