Lagt til að öll stjórn RÚV segi af sér vegna „upplausnarástands“

rúv
Auglýsing

Hlynur Halls­son, vara­maður í stjórn RÚV, leggur til að öll ­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins segi af sér sökum þess að aug­ljóst upp­lausn­ar­á­stand rík­i innan henn­ar. Þetta kemur fram í tölvu­póst­sam­skiptum milli stjórnar RÚV og vara­manna hennar í kjöl­far yfir­lýs­ingar sem dag­skrár­stjórar RÚV sendu þeim fyrr í dag.

Líkt og Kjarn­inn greindi frá fyrr í dag sendu stjórn­endur og á­byrgð­ar­menn dag­skrár Rík­is­út­varps­ins RÚV stjórn fyr­ir­tæk­is­ins yfir­lýs­ingu þar ­sem þeir lýsa áhyggjum sínum af „ákvörðun rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs G­unn­laugs­sonar sem ógna rit­stjórn­ar­legu sjálf­stæði Rík­is­út­varps­ins.“  Undir yfir­lýs­ing­una rita Rakel Þor­bergs­dótt­ir frétta­stjóri, Þröstur Helga­son, dag­skrár­stjóri Rásar 1, Frank Hall, ­dag­skrár­stjóri Rásar 2, Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps og Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, vef- og nýmiðla­stjóri.

Í sam­skiptum stjórnar og vara­manna henn­ar, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kemur m.a. fram svar Guð­laugs G. Sverr­is­son­ar, for­manns ­stjórnar RÚV, við yfir­lýs­ingu dag­skrár­stjór­anna. Í svar­inu segir Guð­laug­ur ­dag­skrár­stjór­anna halda fram „ alvar­legri ásökun um að rík­is­stjórn Íslands hafi tekið sér­ beint dag­skrár­vald á Rík­is­út­varp­inu“ og sendir þeim þess vegna ­stefnu­skjal sem samið hafi verið af Magn­úsi Geir Þórð­ar­syni útvarps­stjóra þar ­sem fram kemur ósk um að auka vægi leik­ins efni á íslensku á kostnað ann­arra ­dag­skrár­liða. „Stjórn Rík­is­út­varps­ins ohf sam­þykkt­i þetta stefnu­skjal  sam­hljóða. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra svar­ar þessum óskum stjórnar RÚV ohf og útvaps­stjóra með því að auka fjár­veit­ingu til­ ­leik­ins efnis á íslensku svo nemur 175 millj­ón­um.”

Auglýsing

Guð­laugur segir enn­fremur að hann hafi komið þessum ­upp­lýs­ingum á fram­færi „í við­tali við Krist­ínu Sig­urð­ar­dóttur frétta­mann Rík­is­út­varps­ins, laug­ar­dag­inn 19. sept­em­ber sl. Af ein­hverjum ástæðum hefur hún ekki talið það frétt­næmt í umræðu um fjár­veit­ingar til Rík­is­út­varps­ins.“

Hlyn­ur, sem er vara­mað­ur­ Vinstri grænna í stjórn RÚV, bregst ókvæða við þessu svari Guð­laugs og svar­ar: „Það er aug­ljóst að upp­lausn­ar­á­stand ríkir innan stjó­irnar Rík­is­út­varps­ins. Ég held að skyn­sam­leg­ast væri að öll stjórnin segði af sér og nýtt fólk verð­i ­kosið til starfa.“ Hann lýsir einni yfir furðu sinni á ummælum Guð­laugs um við­talið við Krist­ínu og segir að í þeim komi fram „í hnot­skurn afstaða hans til sjálf­stæðrar frétta­stofu sem hann virð­ist halda að eigi að ver­a ein­hvers­konar mál­pípa hans og rík­is­stjórn­ar­inn­ar.“

Björg Eva Erlendsdótt­ir, aðal­maður Vinstri grænna, svara ­Guð­laugi einnig og segir við­bárur hans um að skil­yrt fjár­fram­lag ógni ekki ­rit­stjórn­ar­legu frelsi sé „einskis nýtt þvað­ur“. Hún segir að skil­yrt fjár­fram­lag til fyrifram ákveð­innar fram­leiðslu fram­leið­enda utan veggja RUV sé ­dag­skrár­stjórn rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­ans og ætti ekki að líðast, sama hvaða ­stefnu útvarps­stjóri hafi markað eða kynnt í stjórn. „Það er því rangt að ver­ið sé að bera fram alvar­lega ásökun á hendur rík­is­stjórn­ar­inn­ar.Hér er ein­göng­u verið að lýsa stað­reynd­um. Bréfið frá dag­skrár­stjór­unum hefði betur verið kom­ið fram fyrr, því á stjórn­ar­fund­inum í gær óskaði ég eftir því að stjórn mót­mælt­i þessu inn­gripi Alþingis í rit­stjórn Rík­is­út­varps­ins. Því var hafn­að, nán­ast án um­ræðu. Ég legg til að haft verið sam­band við útvarps­stjóra og for­ystu­menn ­fjöl­miðla­sam­taka ann­ars­staðar á Norð­ur­löndum og þeir fengnir til að gera áháð ­mat á þessu máli og í leið­inni að kanna hvort for­dæmi séu ein­hvers­staðar í ná­granna­löndum fyrir fjöl­miðla­af­skiptum af þessu tag­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None