128 þúsund manns horfðu á fyrsta þáttinn af Ófærð

Ófærð
Auglýsing

Alls horfðu 128 þús­und manns á fyrsta þátt Ófærðar sem sýndur var á RÚV klukkan 21 í gær­kvöldi. Með­al­á­horf reynd­ist 49 pró­sent og upp­safnað áhorf 53 pró­sent, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum frá Gallup. Frá þessu er greint á vef RÚV. Ein­ungis Söngvakeppni sjón­varps­ins og Ára­mótaskaupið geta státað af meira áhorfi en Ófærð, en þætt­irnir eru bann­aðir innan 16 ára.

Þætt­irnir segja frá því þegar sund­ur­skorið lík finnst á sama tíma og Nor­ræna kemur til hafn­ar. Með aðal­hlut­verkin fara Ólafur Darri Ólafs­son, Ingvar E. Sig­urðs­son, Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir og Ilmur Krist­jáns­dótt­ir.

Ófærð er dýrasta íslenska sjón­varps­þátta­röð sem hefur verið fram­leidd. Þátta­röðin hefur verið seld víða um heim og var m.a. seld til The Wein­stein Company í sept­em­ber, en það í fyrsta sinn sem íslensk þátta­röð er seld til Banda­ríkj­anna. Hún hefur einnig verið seld til sjón­varps­stöðva víða í Evr­ópu. Kostn­aður við verk­efnið nemur rúmum millj­arði króna.

Auglýsing

Baltasar Kor­mákur hefur veg og vanda að gerð þátt­anna, en fram­leiðslu­fyr­ir­tæki hans RVK Studios fram­leiðir þá. Hann tjáði sig um fjár­mögnun verk­efn­is­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum í umræðum sem haldnar voru í til­efni af kvik­mynda­há­tíð­inni RIFF og báru yfir­skrift­ina Er íslensk kvik­mynda­gerð góð fjár­fest­ing?" 

Baltasar sagð­ist þar oft hafa lent í miklum vand­ræðum með íslenska banka­kerfið, meðal ann­ars í gerð á Ófærð, þótt þætt­irn­ir hafi notið ýmissa styrkja. Það hafi vantað pen­ing á meðan á fram­leiðslu­ferl­inu stóð, styrkir og önnur fjár­mögnun komi inn þegar verk­inu sé skil­að. „Það er svo lítil þekk­ing inni í banka­kerf­inu og fjár­mála­kerf­in­u,“ sagði hann. Það sé svo mikið fjallað um fjár­hags­legu vanda­málin en ekki um það sem gangi vel. Á end­anum hafi Gamma stigið inn í verk­efnið með 500 millj­ónir króna. „Þeir eru að græða á þessu,“ sagði Baltasar. Á end­anum hafi því tek­ist að fjár­magna verk­efnið upp á tæpan millj­arð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None