Dagskrárstjóri RÚV biðst afsökunar á atriði í Stundarskaupinu

skjáskot stundin okkar
Auglýsing

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps á RÚV, hefur beðist afsök­unar á atriði í Stund­ars­kaup­inu, ára­móta­þætti Stund­ar­innar okk­ar. Þetta kemur fram á Face­book-­síðu RÚV. 

Í Stund­ars­kaup­inu 2015 var atriði sem er ekki í sam­ræmi við þá rit­stjórn­ar­línu sem við höfum fylgt varð­andi barna- og fjöl­skyldu­efni. Full ástæða er til að biðj­ast afsök­unar á því. Ég og umsjón­ar­menn Stund­ar­innar okkar erum sam­mála um að barna­efni er ekki og á ekki að vera vett­vangur póli­tískrar ádeilu og það hefur ekki breyst,“ kemur fram í til­kynn­ingu frá Skarp­héðn­i. 

Auglýsing
­At­riðið sem um ræðir sýndi Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra fara um og meðal ann­ars tor­tíma bæði Land­spít­al­anum og hús­næði RÚV. 

Tveir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna, Karl Garð­ar­son frá­ Fram­sókn­ar­flokki og Elín Hirst frá Sjálf­stæð­is­flokki, skrif­uðu grein í Frétta­blaðið í dag þar sem þau gagn­rýndu ára­móta­þátt Stund­ar­innar Okkar og það ­sem þau telja póli­tíska slag­síðu RÚV harð­lega. Bæði eru marg­reynd úr ­fjöl­miðl­um. Karl starf­aði lengi sem frétta­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2 og síð­ar­ ­sem rit­stjóri Blaðs­ins og Elín var frétta­stjóri á frétta­stofu Stöðvar 2 og ­síðar á frétta­stofu RÚV. Í grein sinn­i ­sögðu þau m.a.: „Í gegnum tíð­ina hafa loðað við Rík­is­út­varp­ið ­kenn­ingar um póli­tíska slag­síðu í starf­semi þess. Það er óhætt að segja að þær hafi fengið byr undir báða vængi á gaml­árs­dag. Í barna­þætt­inum Stund­inni okk­ar gaf að sjá nokkur innslög sem lit­uð­ust mjög af póli­tískum áróðri, en áttu á sama tíma á lítið sem ekk­ert skylt við barna­efni.[...] Í barna­þætt­inum mátti sjá for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra þeys­ast um á gjör­eyð­ing­ar­skip­inu „einka­væð­ar­inn“ og tor­tíma bæði Land­spít­al­anum og ­Rík­is­út­varp­inu, á milli þess sem þeir gerðu lítið úr heil­brigð­is­starfs­mönn­um. Á öðrum stað í þætt­inum mátti heyra hvað Eyþór Arn­alds hefði verið „leið­in­leg­ur“ á árinu, en þannig vildi til að hann sat í nefnd sem skil­aði af sér svartri ­skýrslu um fjár­hag Rík­is­út­varps­ins í fyrra. Í barna­tím­anum var þeim skila­boð­u­m komið áleiðis til barna um að ríkj­andi vald­höfum væri ekki treystandi og að þeir vildu eyði­leggja grunn­stoðir sam­fé­lags­ins.

Póli­tískur áróður af hálfu Rík­is­út­varps­ins sem bein­ist að börn­um er með öllu óásætt­an­leg­ur, óháð því hvaða stjórn­mála­menn- eða flokkar eru þar ­gerðir að bit­beini. Börn eru mót­tæki­leg fyrir skila­boðum sem þau hafa ekki ­fullar for­sendur til að gaum­gæfa á gagn­rýn­inn hátt. Þetta end­ur­speglast  til dæmis í því að ýmsar teg­undir aug­lýs­inga eru bann­aðar á barna­tíma, einmitt ­vegna þess hve mót­tæki­leg börn eru fyrir þeim.

Rík­is­út­varpið rauf með þessu áróð­urs­bragði sínu frið­helgi um póli­tískt afskipta­leysi sitt gagn­vart börn­um, og brást um leið laga­legum og sið­ferð­is­legum skyldum sín­um. Við köllum hér með eftir því að stjórn­endur og ­starfs­fólk Rík­is­út­varps­ins svari því með afger­andi hætti hvort þau telj­i á­sætt­an­legt að póli­tískum áróðri sé komið fyrir í barna­þáttum þess. Hlust­end­ur ­Rík­is­út­varps­ins, og ekki síður for­eldr­ar, verð­skulda svar við því hver afstaða ­stofn­un­ar­innar er til slíks áróð­urs.

Karl ítrek­aði gagn­rýni sína á Face­book-­síðu sinni í dag. Stöðu­upp­færslu hans er hægt að sjá hér að neð­an. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None