Sigmundur Davíð vill að verktakar hlusti á gagnrýni á Hafnartorg og endurhanni

Hafnatorg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra telur að þeir sem ætla að byggja upp Hafna­torg í mið­borg Reykja­víkur verði að hlusta á gagn­rýni sem fram hefur komið á verk­efnið og end­ur­hanna reit­inn með hlið­sjón af þeim sjón­ar­mið­um. Sig­mundur Davíð hefur sjálfur lagt fram mikla gagn­rýni á fram­kvæmd­ina, sagt hana vega að mið­bænum og því yfir­bragði sem þar er á byggð­inn og kallað fram­kvæmd­ina skipu­lags­slys. 

Sig­mundur Davíð segir í Morg­un­blað­inu í dag að ótækt sé að verk­takar ­geti beðið með að sýna teikn­ingar af fyr­ir­hug­uðum bygg­ingum þangað til rétt áður en ætl­unin er að sam­þykkja útlit­ið.

Það sé sér­stak­lega mik­il­vægt að breyta þessum vinnu­brögðum þegar upp­bygg­ing í mið­borg Reykja­víkur er ann­ars veg­ar.

Auglýsing

Myndir af þeim húsum sem fyr­ir­hugað er að byggja á Hafn­ar­torg­i, norðan Lækj­ar­torgs, birt­ust fyrst í fjöl­miðlum snemma á þessu ári, mán­uði eft­ir að skipu­lags­yf­ir­völd sam­þykktu fram­kvæmd­ina 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sig­mundur Davíð telur að þeir sem standa að ­upp­bygg­ingu Hafn­ar­torgs ættu að hægja á verk­efn­inu og hlusta á gagn­rýni á það.

For­sæt­is­ráð­herra segir að hann hafi miklar skoð­anir á mál­inu og hafi haft þær um nokk­urt skeið. „Það er búið að vera við­var­andi vanda­mál mjög lengi að fólk fær ekki aðgang að þessum ­upp­lýs­ingum fyrr en það er komið það nálægt fram­kvæmdum að menn leyfa sér, þeg­ar fram koma athuga­semd­ir, að segja að það sé of seint. Það er frá­leitt fyrirkomu­lag. Auð­vitað skiptir útlit húsa máli, ekki síður en stað­setn­ingin eða umfang­ið. Það á sér­stak­lega við mið­bæ­inn, svæði sér­stakrar bygg­ing­ar­listar og sögu. Ég tel ­mik­il­vægt að menn breyti þessu og það er líka í anda þess sem menn ger­a ­kröfu um nú til dags; betri aðkomu almenn­ings að ákvörð­un­um, betri ­upp­lýs­inga­gjöf og gagn­sæ­i.“

Þetta eru ekki einu deil­urnar sem ­for­sæt­is­ráð­herra hefur blandað sér í varð­andi fram­kvæmdir á þessum reit. Á síð­asta ári ákvað Minja­stofn­un Ís­lands, sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið, að skyndi­friða hafn­ar­garð sem er á lóð­inni. Lóð­ar­hafar höfðu sagt að frið­lýs­ing á hafn­ar­garð­inum muni að lág­marki valda þeim 2,2 millj­arða króna tjón­i. Sig­rún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, var ­sett for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og til­kynnti um frið­un­ina. Reykja­vík­ur­borg hafð­i ­dregið í efa stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Dav­íðs til að taka afstöðu til­ ­máls­ins, meðal ann­ars vegna greinar sem hann birti um skipu­lags­mál í Reykja­vík í ágúst. Á end­anum náð­ist sátt um að færa hafn­ar­garð­inn á meðan að fram­kvæmdir standa yfir en setja hann svo aftur upp. Áætl­aður kostn­aður verk­taka við þá fram­kvæmd er um 500 millj­ón­ir króna og ætla þeir að sækja þann kostnað til rík­is­sjóðs fyrir dóm­stólum semj­ist ekki um greiðslu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None