Litlar breytingar á lestri prentmiðla í desember

mogginn.jpg
Auglýsing

Litlar breyt­ingar urðu á lestri prent­miðla lands­ins í des­em­ber síð­ast­liðn­um, sem er stærsti mán­uður árs­ins í aug­lýs­inga­sölu fjöl­miðla. Sögu­lega hefur lestur blaða oft hækkað í þessum mán­uð­i. Lestur á DV og Við­skipta­blað­inu stóð algjör­lega í stað og lestur á Morg­un­blað­inu fór upp um 0,2 pró­sentu­stig. Lestur Frétta­tím­ans dróst saman um 0,9 pró­sentu­stig og Frétta­blaðs­ins um 0,3 pró­sentu­stig. Allar breyt­ing­arnar eru innan skekkju­marka. Þetta kemur fram í nýrri prent­miðla­könnun Gallup sem birt var á föstu­dag.

Frétta­blaðið er sem fyrr mest lesni prent­mið­ill lands­ins, en 49,6 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12-80 ára segj­ast lesa hann. Blaðið fór í fyrsta sinn undir 50 pró­sent lestur í novem­ber 2015 frá árinu 2002. Þá kom blaðið inn á 76 þús­und heim­ili í land­inu. Síðan þá hefur dreif­ing Frétta­blaðs­ins verið aukin og því er nú dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum inn á heim­ili lands­ins sex daga vik­unn­ar. Blaðið fór í gegnum mestu útlits­breyt­ingar sem blaðið hefur ráð­ist í í sögu sinni í ágúst­mán­uði en hefur haldið áfram að tapa lestri síðan þá. 

Lestur blaðs­ins hefur dalað mest hjá fólki undir fimm­tugu. Sum­arið 2008 lásu 66 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 18-49 ára Frétta­blað­ið. Í des­em­ber 2015 lásu rúm­lega 43 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­flokki það. Þeim fækk­aði um 1,6 pró­sentu­stig í jóla­mán­uð­in­um.

Auglýsing

DV heldur þeirri við­spyrnu sem blaðið hefur náð í lestri á und­an­förnum mán­uð­u­m, en blaðið náði sögu­legum botni í lestri í ágúst síð­ast­liðnum þegar 7,13 pró­sent þjóð­ar­innar lásu það. Lestur blaðs­ins hafði aldrei verið jafn lít­ill og þá í 40 ára sögu DV. Nú lesa 9,5 pró­sent lands­manna blað­ið. Athygli vekur hversu mörgum les­endum undir fimm­tugu DV hefur bætt við sig á und­an­förnum mán­uð­um. Í októ­ber lásu ein­ungis 5,1 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­hópi blaðið en tveimur mán­uðum síðar var sá lestur komin upp í 8,4 pró­sent. Það er aukn­ing um 65 pró­sent á nokkrum vik­um.

Við­skipta­blað­ið, sem er selt í áskrift og kemur út einu sinni í viku, hefur aukið tölu­vert við lestur sinn það sem af er þessu ári og í nóv­em­ber mæld­ist lestur á blað­inu 13,4 pró­sent. Það er mesti lestur sem það hefur verið með frá því að það kom aftur inn í mæl­ingar Gallup í júní 2011. Blaðið heldur þeim met­lesti í des­em­ber­mán­uði.

Lestur Morg­un­blaðs­ins mælist nú 28,6 pró­sent, sem er mjög nálægt minnsta lestri sem blaðið hefur nokkru sinni mælst með. Morg­un­blaðið hefur misst um 35 pró­sent les­enda sinna á und­an­förnum sex árum. Sam­drátt­ur­inn hefur verið sér­stak­lega mik­ill hjá Íslend­ingum undir 50 ára, en nú lesa 19,4 pró­sent lands­manna í þeirra blað­ið. Morg­un­blaðið hefur verið mun oftar í frídreif­ingu á und­an­förnum árum, sér­stak­lega á fimmtu­dög­um, en það var áður.

Frétta­tím­inn, sem fékk nýja eig­endur í lok síð­asta árs, tapar mestu allra í lestri á milli mán­aða. Nú lesa 36,9 pró­sent lands­manna blað­ið. Það tapar tölu­verðu af les­endum undir fimm­tugu á milli mán­aða en 29,4 pró­sent lands­manna milli 18-49 ára les blað­ið. Þegar hafa orðið nokkrar breyt­ingar á blað­inu það sem af er þessu ári, meðal ann­ars útlits­leg­ar. Gunnar Smári Egils­son og Þóra Tóm­as­dóttir hafa tekið við rit­stjórn blaðs­ins og Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur verið ráðin frétta­stjóri blaðs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None