Forsetinn og utanríkisráðherrann fallast í faðma á íranska þinginu í dag.
Forsetinn og utanríkisráðherrann fallast í faðma á íranska þinginu í dag.
Auglýsing

Nýr kafli er haf­inn í sam­skiptum Írans við heim­inn eftir að alþjóð­legum við­skipta­þving­unum á ríkið hefur verið lyft. Þetta segir Hassan Rou­hani for­seti lands­ins. 

Við­skipta­þving­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna, Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa haft mikil áhrif á efna­hag Írans. Hluti af kjarn­orku­sam­komu­lag­inu sem náð­ist við Íran á síð­asta ári fól það í sér að við­skipta­þving­unum yrði létt ef ákveðnum skil­yrðum væri mætt. Í gær var til­kynnt um það að Íranir hefðu upp­fyllt þau skil­yrði, og því yrði haf­ist handa við að aflétta þving­un­um. Þessu hefur verið fagnað víða síðan þá. Talað er um dag­inn sem inn­leið­ing­ar­dag­inn, eða Implem­enta­tion Day á ensku. 

Banda­ríkin og Íran hafa skipst á föngum sem hafa verið í haldi í hvoru landi um sig. Íranir slepptu úr haldi fimm föng­um, meðal ann­ars Jason Rezai­an, blaða­manni Was­hington Post, sem hefur verið í haldi grun­aður um njósnir í meira en ár. Allir fang­arnir eru með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt í Banda­ríkj­unum og Íran. Þeim var sleppt í skiptum fyrir sjö Írani sem hafa verið í haldi banda­rískra yfir­valda fyrir brot á við­skipta­þving­un­un­um. 

Auglýsing

Rou­hani vill að almenn­ingur í land­inu finni fyrir áhrifum breyt­ing­anna áður en þing­kosn­ingar verða haldnar í Íran í febr­ú­ar. Fljót­lega munu bankar í Íran opna á sam­skipti sín við evr­ópska fjár­mála­kerf­ið. 30 millj­arðar Banda­ríkja­dala, sem hafa verið frosnir und­an­farin ár, verða strax aðgengi­legir Írön­um, en alls hafa 100 millj­arðar dala verið frosn­ir. 

Nú verður ekki lengur bannað að flytja íranska olíu til Evr­ópu­sam­bands­ríkja, og það mun hafa áhrif á alþjóð­lega olíu­mark­að­inn. Stjórn­völd í Íran munu lík­lega bæta hálfri milljón hrá­ol­íu­tunna á mark­að­inn á dag - sem mun að öllum lík­indum lækka olíu­verðið enn frek­ar. Búist er við því að hálfri milljón tunna til við­bótar verði bætt við eftir ein­hvern tíma. Nú þegar flytja Íranir út um 1,1 milljón tunna á dag. 

Enn fremur hefur Barack Obama Banda­ríkja­for­seti lyft banni við sölu á flug­vélum til Írans. BBC greinir frá því að Íranir vilji kaupa 114 nýjar far­þega­flug­vélar frá Air­bus. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None