Frumvarp um almennar íbúðir byggt á stefnu ASÍ

ASÍ og SA eru sammála um að stefna stjórnvalda byggist á stefnu ASÍ, en eru ósammála um hvort það sé gott eða ekki.
ASÍ og SA eru sammála um að stefna stjórnvalda byggist á stefnu ASÍ, en eru ósammála um hvort það sé gott eða ekki.
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd hafa gert stefnu Alþýðu­sam­bands Íslands að sinni eigin stefnu í hús­næð­is­mál­um, segir Þor­steinn Víglunds­son fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins í umsögn sam­tak­anna um frum­varp um almennar íbúð­ir. Auk þess hefur félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið haft athuga­semdir SA um frum­varpið að eng­u. 

Frum­varp um almennar íbúðir er eitt fjög­urra hús­næð­is­mála­frum­varpa sem Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur lagt fram á Alþingi í vet­ur. Frum­varpið er hluti af lof­orðum rík­is­stjórn­ar­innar til að greiða fyrir gerð kjara­samn­inga í fyrra. Frum­varp­inu er ætlað að leggja grunn að nýju félags­legu leigu­í­búða­kerfi, sem á að fjár­magn­ast með stofn­fram­lögum ríkis og sveit­ar­fé­laga, eða með beinum vaxta­nið­ur­greiðsl­um. Eygló hefur sagt að stuðn­ingur við frum­varpið sé tryggt, en stefnt er að því að afgreiðslu þess verði lokið á Alþingi um mán­aða­mót­in. 

Vilja íbúð­irnar ekki eins almennar

Sam­tök atvinnu­lífs­ins setja fram ýmsar athuga­semdir við frum­varp­ið, og telja ekki heppi­legt að hið opin­bera beiti miklum inn­gripum á hús­næð­is­mark­aði frekar en öðrum mörk­uð­um. Sam­tökin segja íslensk stjórn­völd hafa ítrekað komið á fyr­ir­komu­lagi sem hafi verið ætlað að búa efna­litlu fólki öryggi í hús­næð­is­mál­um, í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lög og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Oftar en ekki hefur þurft að breyta ríkj­andi fyr­ir­komu­lagi, m.a. til að bregð­ast við mik­illi eft­ir­spurn eftir nið­ur­greiddu hús­næði og vax­andi kostn­aði hins opin­bera því sam­fara.“ Það þurfi að vanda til und­ir­bún­ings á nýju fyr­ir­komu­lagi eigi það að verða lang­líf­ar­ara en þau kerfi sem hingað til hafa verið sett á lagg­irn­ar. 

Auglýsing

SA segir að fyr­ir­komu­lagið um stofn­styrki sé flók­ið, í stað þess að mót­aður sé almennur rammi um þau skil­yrði sem hið opin­bera telji þurfa svo tryggt sé að lág­tekju­fólk eigi kost á hús­næði á hóf­legum leigu­kjör­um. Þá telja sam­tökin að aðgang­ur­inn að leigu­í­búðum sé alltof rúmur sam­kvæmt frum­varp­inu og með því gæti nálægt 40% þjóð­ar­innar fengið aðgang að félags­legu hús­næði. „Þessi aðgangur ætti að vera mun tak­mark­aðri, t.d. bund­inn við neðstu 15-20%.“ Þessi aðgangur muni skapa mikla eft­ir­spurn eftir íbúð­um, langt umfram það sem í boði verð­i. 

Aðrir jákvæð­ari gagn­vart frum­varp­inu 

Flestir aðrir umsagn­ar­að­ilar eru jákvæð­ari gagn­vart frum­varp­inu, þrátt fyrir að flestir hafi ein­hverjar athuga­semdir við það. ASÍ segir í sinni umsögn, rétt eins og SA, að frum­varpið byggi í grund­vall­ar­at­riðum á stefnu sam­bands­ins, sem hafi verið mörkuð haustið 2012. Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, lýsir yfir ein­dregnum stuðn­ingi sam­bands­ins við frum­varpið í umsögn ASÍ um það. 

Af öðrum aðilum vinnu­mark­að­ar­ins skil­aði BSRB einnig umsögn um frum­varp­ið, þar sem kemur fram að banda­lagið bindi miklar vonir við að fram­boð leigu­hús­næðis fyrir launa­fólk auk­ist veru­lega verði frum­varpið að lög­um. Það sé mik­il­vægt að teg­kju­lágar fjöl­skyld­ur, sem hingað til hafi ekki átt kost á því, fái aðgang að öruggu leigu­hús­næði á við­ráð­an­legu leigu­verði. Það sé rétt að kveða á um það með skýrum hætti að leiga verði ekki umfram 20-25% af tekjum þessa fólks. 

Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks með efa­semdir

Þing­hópur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur margt að athuga við hús­næð­is­frum­vörp Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Þetta segir Ragn­heiður Rík­harðs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við Morg­un­blaðið í dag. Áður hafði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari flokks­ins gagn­rýnt frum­vörpin í fjöl­miðlum og sagt að hún telji að ekki muni allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kjósa með þeim. 

Ragn­heiður segir að það hafi alltaf verið vitað að stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hús­næð­is­málum sé sér­eign­ar­stefna. Sú stefna að það eigi að gera fólki kleift að eign­ast sínar eigin íbúð­ir. Við höfum rætt ýmis­legt í þá veru, eins og sér­eign­ar­sparnað og sér­stakan sparn­að, og að tekið verði mið með öðrum hætti af leigu­tekj­um, sem fólk hefur greitt í mörg ár, inn í greiðslu­mat­ið. Það er ýmis­legt þar sem við höfum ekki síður viljað leggja áherslu á, en að fara í þann far­veg að beina fólki út á leigu­mark­að­inn[...]Við höfum margt við þetta að athuga. Við viljum leggj­ast yfir þetta, en það þýðir ekki að það verði ekki hægt að kom­ast að sam­komu­lagi um að hlut­irnir verði afgreiddir með einum eða öðrum hætt­i."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None