Forsætisráðuneytið fær að koma að endurhönnun bygginga á Hafnartorgi

Forsætisráðuneytið kemur að endurhönnun á byggingum sem forsætisráðherra gagnrýndi harðlega á dögunum.

Hafnatorg
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið fær að hafa aðkomu að end­ur­hönnun bygg­inga á reitnum Hafn­ar­torgi í mið­borg Reykja­vík­ur, bygg­ingar sem for­sæt­is­ráð­herra hefur gagn­rýnt. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og Land­stólpum ehf. Land­stólpar, sem eiga reit­inn við Aust­ur­bakka 2, hafa boð­ist til þess að end­ur­skoða hönnun bygg­inga á reitnum í sam­ráði við for­sæt­is­ráðu­neytið og einnig boðið Stjórn­ar­ráði Íslands að leigja allt skrif­stofu­hús­næði á reitn­um, alls 6.400 fer­metra. 

Húsið er um ræðir er hið umdeilda hús gegnt Arn­ar­hóli, sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur meðal ann­ars gagn­rýnt útlitið á harð­lega. „Ef þarna yrði byggt með þeim hætti sem dregið hefur verið upp á þessum myndum yrði það lík­lega seinna álitið mesta skipu­lags­slys í miðbæ Reykja­víkur í seinni tíð og jafn­vel alla tíð,“ sagði hann við Morg­un­blaðið fyrir skömmu. Hann lýsti því yfir að hann teldi að end­ur­hugsa þyrfti frá grunni fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu, ann­ars stefni í óefn­i. 

Lóðin hefur líka verið umdeild vegna hafn­ar­garðs­ins sem þar stóð og Sig­rún Magn­ús­dóttir frið­aði sem starf­andi for­sæt­is­ráð­herra í októ­ber síð­ast­liðn­um. Lend­ing náð­ist í því máli með þeim hætti að Land­stólpar þurftu að fjar­lægja hafn­ar­garð­inn stein fyrir stein og svo verður hann settur upp aftur síð­ar. Land­stólpar hafa lýst því yfir að skaða­bætur verði sóttar í rík­is­sjóð vegna þessa kostn­að­ar, sem met­inn er á hálfan millj­arð króna. 

Auglýsing

Hafnartorg eftir PK arkitekta.

Guðni Rafn Eiríks­son, einn eig­enda Land­stólpa, segir að næstu þrjár vikur verði not­aðar til að skoða málin og reyna að finna lausn sem öllum aðilum hugn­ast. Það sé oft þannig að leigj­endur að nýbygg­ingum fái að hafa skoðun og áhrif á bygg­ing­arn­ar, jafn­vel útlit­ið. Það hafi verið sam­tal milli stjórn­ar­ráðs­ins og fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2014. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None