Urðu hlaðvarpsfíklar í Svíþjóð - Útvarp Ísafjörður hefur göngu sína

Nýr hlaðvarpsþáttur hóf göngu sína í Hlaðvarpi Kjarnans í dag. Útvarp Ísafjörður fer í loftið alla mánudaga.

Gylfi, Þorsteinn og Tinna sjá um hlaðvarpsþáttinn Útvarp Ísafjörður í Hlaðvarpi Kjarnans. Þátturinn verður á dagskrá á mánudögum í vor.
Gylfi, Þorsteinn og Tinna sjá um hlaðvarpsþáttinn Útvarp Ísafjörður í Hlaðvarpi Kjarnans. Þátturinn verður á dagskrá á mánudögum í vor.
Auglýsing

Nýr þáttur hóf göngu sína í Hlað­varpi Kjarn­ans í dag. Í Útvarpi Ísa­firði fjalla þau Gylfi Ólafs­son, Tinna Ólafs­dóttir og Þor­steinn Más­son um fregnir af lands­byggð­inni í víðum skiln­ingi. Fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið í hlað­varps­straumnum í dag og verður þátt­ur­inn á dag­skrá á mánu­dögum í vor.

„Við Gylfi ánetj­uð­umst hlað­varps­þáttum þegar við bjuggum í Sví­þjóð og höfum lengi haft það bak við eyrað að gaman væri að gera eigin þætt­i,“ segir Tinna. „Við vildum þó ekki gera það nema hafa skýrt þema og við köst­uðum allskyns hug­myndum fram sem voru slegnar jafn fljótt út af borð­in­u.“

Þau átt­uðu sig á end­anum á því að eðli­leg­ast væri að tala um það sem stæði hjarta þeirra næst. „Út­varp Ísa­fjörður fjallar því um byggða­mál í víð­asta skiln­ingi þess orðs, bæði stór mál og smá sem vekja athygli okkar og eiga það sam­eig­in­legt að tengj­ast lands­byggð­inn­i,“ segir Tinna enn frem­ur. „Þegar við vorum dottin niður á efni kom ekki annað til greina en að fá Steina til að vera með okkur enda er hann snjall, fróður um flest og hnytt­inn í til­svör­u­m.“

Auglýsing

Þátt­ur­inn er fram­leiddur á þremur stöðum og sam­talið tekið upp með hjálp nýj­ustu tækni. Gylfi og Tinna eru í Reykja­vík og Þor­steinn í Bol­unga­vík. Í fyrsta þætt­inum ræddu þau nær ein­göngu alís­lenska hluti á borð við öryggi sjó­manna, göngu­skíða­iðkun sem meðal við ald­ur­skrísu, amer­ískar stór­myndir á Akra­nesi og karp um byggða­stefnu sveit­ar­fé­laga.

Meðal ann­ars eru hug­myndir Úlf­ars Ágústs­son­ar, versl­un­ar­manns, rifj­aðar upp í þessum fyrsta þætti en hann lagð til fyrr á þess­ari öld nýja skipan byggða­mála á Vestjörð­um. Lands­hlut­inn hafði þá verið í vörn í byggða­legu til­liti í alltof langan tíma og þyrfti að fara að gera sér grein fyrir styrk­leikum sínum og veik­leik­um. Úlfar lagði því til að Ísa­fjörður og þorpin í kringum Ísa­fjörð þyrftu að setja sér mark­mið og þrengja fók­us­inn.

Svo nefnd séu hér nokkur dæmi þá ætti Ísa­fjörður að vera þjón­ustu­kjarn­inn sam­kvæmt hug­myndum Úlf­ars, Suð­ur­eyri ætti að nýta sína helstu styrk­leika sem eru stuttar vega­lengdir á miðin og gott smá­báta­lægi í höfn­inni og Þing­eyri ætti að verða sum­ar­dval­ar­stað­ur. Styrk­leikar Þing­eyrar eru nálægð við vest­firsku alpana og mikil nátt­úru­feg­urð. Nánar er rætt um hug­mynd­irnar í þætt­in­um. Hægt er að hlusta í spil­ar­anum hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiHlaðvarp
None