Framsókn og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig

15377657853_2d6e3e826f_c.jpg
Auglýsing

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er komið aftur upp fyrir 20 pró­sent sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnum MMR. Það mælist nú 21,1 pró­sent. Í síð­ustu könnun fyrir­tæk­is­ins var það 19,5 pró­sent sem er minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í sög­unni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn tölu­vert langt frá kjör­fylgi sínu, en hann fékk 26,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2013. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir einnig við sig frá síð­ustu könnun og mælist nú með 12,2 pró­sent fylgi. Hann mæld­ist með tíu pró­sent í könnun MMR sem gerð var í jan­úar og fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst um þrjú pró­sentu­stig og er nú 33,2 pró­sent. 

Píratar mæl­ast með 35,6 pró­sent fylgi sem er aðeins minna en þeir mæld­ust með í jan­ú­ar. Þá mæld­ist stuðn­ingur við þá 37,8 pró­sent. 

Sam­fylk­ingin fer nærri meti sínu í litlu fylgi og mælist nú með 9,4 pró­sent stuðn­ing. Það er ein­ungis 0,1 pró­sentu­stigi meira en sögu­legur botn hennar í könn­unum MMR, en honum var náð í júní 2015 þegar fylgið mæld­ist 9,3 pró­sent. Sam­fylk­ingin fékk 12,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum sem var lang­versti árangur flokks­ins frá stofn­un. Í gær fór þing­maður flokks­ins fram á að lands­fundi flokks­ins yrði flýtt og þar með for­manns­kosn­ingu. Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur sagt að hann sé ekki mót­fall­inn því. 

Auglýsing



Fylgi Vinstri grænna dregst saman á milli kann­ana. Nú segj­ast ell­efu pró­sent aðspurðra styðja flokk­inn en fylgið mæld­ist 12,5 pró­sent í síð­ustu könn­un. Vinstri græn fengu 10,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum þannig að stuðn­ingur flokks­ins er við kjör­fylgi.

Björt fram­tíð stendur í stað frá síð­ustu könnun með sitt 4,4 pró­sent fylgi, sem nægir ekki til að koma manni inn á þing. Í dag er flokk­ur­inn með sex þing­menn eftir að hafa fengið 8,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2013.

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 27. jan­úar til 1. febr­úar 2015 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 984 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri. Allar nið­ur­stöður hafa ein­hver vik­mörk sem miðað við 1000 svar­endur geta verið allt að +/-3,1 pró­sent. Það þýðir að lík­legt sé að raun­veru­legt fylgi við­kom­andi flokks, eða þess sem mælt er, sé ein­hvers­staðar á bili sem er 3,1 pró­sent hærra eða lægra en nið­ur­staða könn­un­ar­innar gefur til kynna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None