Yfir 70 þúsund skrifa undir endurreisn heilbrigðiskerfisins - stærsta söfnun í sögunni

kári stefánsson
Auglýsing

Yfir sjö­tíu þús­und manns hafa nú skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. 70.500 ein­stak­lingar hafa þegar þetta er skrifað sett nafn sitt við und­ir­skrifta­söfn­un­ina, og þar með er söfn­unin orðin sú stærsta í sög­unni þar sem skorað er á ráða­menn á Ísland­i. 

Lang­fjöl­menn­asta und­ir­skrifta­söfn­unin hingað til snérist um að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í Vatns­mýr­inni og hún hét Hjartað í Vatns­mýr­inni. Undir hana skrif­uðu tæp­lega 70 þús­und manns, eða 69.809 manns, árið 2013.

Fleiri skrif­uðu þó undir und­ir­skrifta­söfnun til breskra stjórn­valda til að mót­mæla notkun hryðju­verka­laga til að frysta íslenskar eignir þar í landi eftir að bank­arnir féllu. Það var Indefence sem stóð fyrir þeirri söfn­un, og um 83 þús­und und­ir­skriftir náð­ust. 

Auglýsing

Und­ir­skrifta­söfnun Kára hófst þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Kári boð­aði und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina í des­em­ber síð­ast­liðnum í kjöl­far rit­deilu sem hann átti við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Kári krefst þess að ríkið eyði ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál. 

Í til­kynn­ingu frá Kára vegna þessa kom fram að und­ir­skrifta­söfn­unin sé til stuðn­ings kröf­unni um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þar er eft­ir­far­andi haft eftir Kára: Heil­brigð­is­kerfi er einn af horn­steinum nútíma­sam­fé­lags og sýnir vilja þess til þess að hlúa að þeim sem eru sjúkir og meidd­ir. Gott heil­brigð­is­kerfi end­ur­speglar sjálf­sagða sam­hygð en lélegt heil­brigð­is­kerfi  óá­sætt­an­legan kulda gagn­vart þeim sem eru hjálpar þurfi. Það er okkar mat að á síð­asta ald­ar­fjórð­ungi hafi stjórn­völd vannært íslenskt heil­brigð­is­kerfi, að  því marki að það sé ekki lengur þess megn­ugt að sinna hlut­verki sínu sem skyld­i. 

Það hefur ekki fylgt fram­þróun í lækn­is­fræði, hvorki hvað snertir notkun á tækja­bún­aði né bestu lyfjum og helstu stofn­anir þess eru hýstar á þann veg að það kemur í veg fyrir að hægt sé að veita nægi­lega mikla og góða þjón­ustu. Hnignun heil­brigð­is­kerf­is­ins hefur að mestu leyti verið óháð því hvaða stjórn­mála­flokkar hafa verið  við völd vegna þess að hún hefur verið stöðug og sam­felld.

Íslend­ingar eyða því sem nemur 8.7% af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál og er það langt undir með­al­tali á Norð­ur­lönd­um. Það er mat þeirra sem gerst þekkja til að við þurfum að eyða allt að 11% af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál vegna þess að við erum fá og dreifð sem gerir þjón­ust­una dýr­ari en meðal stærri og þétt­býlli þjóða. Þar sem kjörnir full­trúar þjóð­ar­innar um ald­ar­fjórð­ungs­skeið hafa ekki haft að því frum­kvæði að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið eins og skyldi, ætlum við und­ir­rituð að taka frum­kvæðið með eft­ir­far­andi kröf­u."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None