Úttekt á íslenska skattkerfinu verður tilbúin í vor

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á Viðskiptaþingi 2016.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á Viðskiptaþingi 2016.
Auglýsing

Á síð­asta fundi Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld, sem komið var á lagg­irnar snemma árs 2013, var sam­þykkt að fara í úttekt á íslenska skatt­kerf­inu og koma með til­lögur um hvernig megi bæta skil­virkni þess. Úttektin á að verða til­búin í vor. Þetta kom fram í ræð­u ­Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra á Við­skipta­þingi síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

Sam­ráðs­vett­vang­ur­inn, sem sett­ur var saman í kjöl­far þess að ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McK­insey&Company skrif­að­i ­skýrslu um hag­vaxt­ar­mögu­leika Íslend­inga árið 2012, er þverpóli­tískur og þver­fag­legur vett­vangur sem ætlað er að stiðla að umræðu um leiðir til að ­tryggja hag­sæld á Íslandi. Þar sitja for­menn allra stjórn­mála­flokka sem sæt­i eiga á Alþingi, helstu hags­muna­sam­tök laun­þega og atvinnu­rek­enda, full­trú­ar há­skóla­sam­fé­lags­ins, sveita­fé­laga og stjórn­endur fyr­ir­tækja úr ýmsum­ at­vinnu­grein­um. Vett­vang­ur­inn heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Lítið hefur farið fyr­ir­ ­Sam­ráðs­vett­vangnum á þessu kjör­tíma­bili. Hann hefur þó fundað reglu­lega og ­síð­ast þann 13. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þar var ofan­greind úttekt sam­þykkt. Á Við­skipta­þingi í síð­ustu viku varð Katrín Olga Jóhann­es­dóttir fyrsta konan til­ að vera kjör­inn for­maður Við­skipta­ráðs. Katrín Olga hefur einnig ver­ið vara­for­maður Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld og sem slíkur talað mjög fyr­ir­ þeim áherslum sem hann stendur fyr­ir.

Auglýsing

Var í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar

Hug­myndin um heild­stæða úttekt á skatt­kerf­inu fædd­ist þó ekki á síð­asta fundi Sam­ráðs­vett­vangs­ins. Slík úttekt er hluti af stefnu­yf­ir­lýs­ingu sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og ­Sjálf­stæð­is­flokks. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, sem kynnt var á Laug­ar­vatni í maí 2013, sagði að gerð yrði „út­tekt á skatt­kerf­inu og skatt­kerf­is­breyt­ingum und­an­far­inna ára og lagðar fram til­lögur til úrbóta með­ það að mark­miði að ein­falda skatt­kerf­ið, breikka skatt­stofna, minn­ka ­tekju­teng­ingar og draga úr und­an­skot­u­m.“ Með ein­földun skatt­kerf­is­ins og inn­leið­ing­u já­kvæðra hvata yrði rekstur fyr­ir­tækja ein­fald­ari og skil­virk­ari.

Nú þegar rúmt ár lifir af ­kjör­tíma­bil­inu verður ráð­ist í þessa úttekt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None