Vilja afsagnir vegna Borgunarmálsins

Löglegur en siðlaus gjörningur, segir þingmaður VG um Borgunarmálið. Tveir þingmenn kölluðu eftir afsögnum í þingsal í dag.

Al--ingi.jpg
Auglýsing

Tveir þing­menn köll­uðu eftir því á Alþingi í dag að yfir­menn í Lands­bank­anum segi af sér vegna Borg­un­ar­máls­ins. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður VG, sagði að „að mínu viti eiga bæði stjórn og banka­stjóri að víkja“ og Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði að taka yrði þannig til hend­inni að „yf­ir­stjórn bank­ans vík­i.“ 

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, ræddi einnig um málið og sagði það verða flókn­ara og flókn­ara með hverjum deg­inum sem líði og stjórn­endur Lands­bank­ans hafi orðið marg­saga í mál­inu. „Fjár­mála­kerfið í heild þarf að fá yfir­haln­ing­u,“ sagði hann, nú væri tæki­færi til að raða spil­unum upp á nýtt og stokka upp banka­kerf­ið. 

„Dag eftir dag er okkur boðið upp á farsa. Farsa í boði Lands­bank­ans og ­Borg­un­ar. Það er ekki boð­legt hvernig þessir aðilar hegða sér­ og koma hér fram,“ sagði Bjarkey um málið í dag. „Það má vel vera að þessi ­gjörn­ingur sé lög­leg­ur, en hann er algjör­lega sið­laus.“ Hún sagði málið snú­ast um traust og trú­verð­ug­leika banka, sem ríkið væri komið með í fangið og hún hefði áhyggjur af. 

Auglýsing

Þor­steinn sagði málið einnig snú­ast um traust og trú­verð­ug­leika bank­ans, og væri þannig farið að snú­ast um allt annað og miklu meira en sölu bank­ans á hlut sínum í Borg­un, „sem var nógu slæm.“ Nú væru Borgun og Lands­bank­inn farin að kenna hvoru öðru um. Það hafi mátt vera ljóst jafn­vel áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun að til stæði að Visa Inc. keypti Visa Europe, það hafi komið fram í fjöl­miðlum og í árs­hluta­upp­gjöri hjá Visa Inc. „Nú bera menn af sér og segj­ast ekki hafa vitað þetta. Eins og ég hef sagt hér áður er fávísi ekki sak­næm en hún er rán­dýr.“ 

Bæði Árni Páll og Þor­steinn köll­uðu jafn­farmt eftir því að Alþingi taki málið til athug­un­ar. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að öllum steinum verði velt við,“ sagði Árni Pál­l. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None