Landsbankinn seldi Valitor á mun lægra verði miðað við eigið fé

Landsbankinn
Auglýsing

Lands­bank­inn hélt mögu­legum greiðslur af val­rétti milli Visa Inc. og Visa Europe fyrir utan verð­mat á 38 pró­sent hlut sínum í Valitor þegar fyr­ir­tækið var selt til Arion banka í des­em­ber 2014. Ástæðan hafi verið sú að mikil óvissa hafi verið uppi um mögu­lega nýt­ingu val­rétt­ar­ins og að ekki væri víst að hann yrði virkj­að­ur. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Á heima­síðu bank­ans, í svo­kall­aðri spurt og svar­að-­síðu vegna söl­unar á Borg­un, kemur hins vegar fram að við verð­lagn­ingu á hlutnum hafi verðið meðal ann­ars ráð­ist af því að bank­inn taldi for­sendur til að semja um við­bót­ar­greiðslu ef Visa Inc. myndi kaupa Visa Europe. Þegar Valitor var selt á 3,6 millj­arða króna var sá marg­fald­ari eig­in­fjár sem stuðst var við við verð­matið 1,18. Þegar hlutur bank­ans í Borgun var seldur nokkrum vikum fyrr á 2,2 millj­arða króna, var marg­fald­ar­inn 1,88. Valitor-hlut­ur­inn var því seldur á mun lægra verði en hlut­ur­inn í Borgun miðað við eigið fé. 

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber 2014 að þeg­ar kaup­verðið á hlutnum í Borgum var mátað við mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast oft við þegar þeir meta fjár­fest­inga­kosti virt­ist það vera lágt, bæði í sam­an­burði við virði erlendra greiðslu­korta­fyr­ir­tækja, virði ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja og félaga sem skráð eru á markað á Íslandi. Sama má segja um verðið á hlutnum í Valitor.

Auglýsing

Ekki upp­lýst um hvað Lands­bank­inn fær

Enn er óljóst hversu mikið fellur Lands­bank­anum í skaut vegna val­réttar Valitor. Frétta­stofa RÚV greindi frá því í síð­ustu viku að Lands­bank­inn hefði fengið heim­ild til að gera nán­ari grein fyrir skil­mála í samn­ingi sem gerður var vegna kaupa bank­ans á 38 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Valitor. Lands­bank­inn synj­aði hins vegar frétta­stofu RÚV um að fá umræddan skil­mála afhent­an. Í bréfi sínu til Banka­sýslu rík­is­ins nokkrum dögum síðar var hins vegar greint frá því hver skil­mál­inn er. Þar seg­ir: Við­bót­ar­greiðsl­ur, sem Lands­bank­inn kann að fá frá Arion banka vegna val­rétt­ar­ins, svara til 38% af and­virði greiðslna sem ber­ast VISA Ísland (dótt­ur­fé­lag Valitor) að teknu til­liti til skatta, gjalda og kostn­aðar sem slíkum greiðslum kann að fylgja. Við­bót­ar­greiðslur lækka í 20% ef, og frá og með þeim tíma sem, Lands­bank­inn gengur úr við­skiptum við Valitor."

Valitor er bæði útgef­andi og aðal­leyf­is­hafi Visa og, sam­kvæmt umfjöllun í fjöl­miðl­um, á fyr­ir­tækið von á allt að fimmtán millj­arða króna greiðslu vegna sam­runa Visa Inc. og Visa Europe. Ekki hefur verið gefið upp hjá Lands­bank­anum hversu háa greiðslu hann býst við að fá vegna val­rétt­ar­ins, á grund­velli ofan­greinds skil­mála, en vert er að benda á að Borgun hefur þegar upp­lýst hversu mikið fyr­ir­tækið telur að falli í sinn hlut vegna nýt­ingu á sínum val­rétt­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None