Segja Kaupþingsmenn hafa viljað reka eigið „lúxusúrræði“ fyrir ríka fanga

Ólafur Ólafsson er einn þeirra fanga tengdir Kaupþingi sem nú afplánar á Kvíabryggju.
Ólafur Ólafsson er einn þeirra fanga tengdir Kaupþingi sem nú afplánar á Kvíabryggju.
Auglýsing

Aðilar tengdir þeim Kaup­þings­mönnum sem nú afplána þunga ­dóma á Kvía­bryggju eru sagðir hafa leitað með óform­legum hætti til Fang­els­is­mála­stofn­unar Íslands í fyrra vegna hug­mynda um að opna og reka „lúx­us“ áfanga­heim­ili fyr­ir­ ­sterk­efn­aða fanga. Þetta kemur fram í frétt á vef Kvenna­blaðs­ins í dag.

Þar kemur fram að Fang­els­is­mála­stofnun hafi hafnað hug­mynd­un­um. Í frétt Kvenna­blaðs­ins seg­ir: 

Auglýsing

Fangar sem Kvenna­blaðið hefur rætt við segja þá Ólaf Ólafs­son fjár­festi og fyrrum hluta­hafa í Kaup­þingi og Hreiðar Má Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóra ­Kaup­þings, vera prímus motor að baki hug­mynd­inni. Þeir hafi rætt hug­mynd­ina fjálg­lega sín á milli og við aðra fanga.“ Aðal­lega hafi lagst illa í menn­ina að deila her­bergi með öðrum, líkt og tíðkast á því áfanga­heim­ili sem nú er rekið á Íslandi.

Eitt áfanga­heim­ili er rekið hér­lend­is, Vernd, sem er á Lauga­teig 19 í Laug­ar­nes­hverf­inu í Reykja­vík­. Það hefur verið starf­rækt frá árinu 1995 og hátt í þús­und fangar hafa lok­ið af­plánun sinni þar í sam­ræmi við lög um fulln­ustu refs­ing­ar. Þeim föngum sem d­velja á áfanga­heim­ili eins og Vernd er heim­ilt að sinna vinnu á dag­inn en þurfa að lúta reglum heim­ils­ins og tak­mörk­unum á ferða­frelsi sínu. Vist­menn hafa heim­ild til að vera utan Verndar frá sjö að morgni til ell­efu að kvöldi á virkum dög­um en til níu að kvöldi um helgar

Heim­ildir Kjarn­ans stað­festa að rétt sé að lagðar hafi verið fram hug­myndir um að opna ann­að á­fanga­heim­ili, sem myndi starfa innan sama lag­ara­mma og Vernd, um mitt ár í fyrra. 

Í frétt Kvenna­blaðs­ins kemur fram að heim­ilda­menn nátengdir Kaup­þings­mönnum á Kvía­bryggju hafi þver­tekið fyrir að þeir hafi staðið að baki því að vilja opna nýtt áfanga­heim­il­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None