Ráðherra segir ríkið ekki bera kostnað af hafnargarðinum

Sigrún Magnúsdóttir segir að Landstólpi borgi fyrir flutning hafnargarðsins. Því er Landstólpi ósammála, telur lögin skýr og mun sækja bætur í ríkissjóð.

Hafnargarðurinn, sem þurfti að taka upp stein fyrir stein og verður svo settur aftur á sinn stað.
Hafnargarðurinn, sem þurfti að taka upp stein fyrir stein og verður svo settur aftur á sinn stað.
Auglýsing

Sig­rún Magn­ús­dóttir umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra segir að ríkið muni ekki bera neinn kostnað af því að láta flytja hafn­ar­garð­inn á Aust­ur­hafn­ar­reitn­um. Aðeins launa­kostn­aður vegna eft­ir­lits Minja­stofn­unar með fram­kvæmd­unum kemur í hlut rík­is­ins. Þetta kemur fram í svari hennar við fyr­ir­spurn Sig­ríðar Ingi­bjargar Inga­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 

Fram­kvæmd­ar­að­il­inn, Land­stólpi, er á öðru máli og telur ljóst að ríkið eigi að bera allan kostn­að­inn af fram­kvæmd­un­um. Þetta stað­festir Guðni Rafn Eiríks­son í sam­tali við Kjarn­ann. Búið var að reikna út að kostn­að­ur­inn yrði um 500 millj­ónir króna, en ekki er ljóst hversu hárrar upp­hæðar verði kraf­ist. 

Land­stólpi hefur raunar alltaf haldið því fram að það sé ríkið sem bera eigi kostn­að­inn af mál­inu. Sig­rún var settur for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og ákvað að friða hafn­ar­garð­inn þegar fram­kvæmdir stóðu fyrir dyrum á reitn­um. Áður hafði Minja­stofnun Íslands beitt skyndi­frið­un. Þegar búið var að friða garð­inn í októ­ber síð­ast­liðnum tölu lóð­ar­haf­arnir á reitn­um, sem er við hlið Toll­húss­ins, að frið­lýs­ingin myndi valda að lág­marki 2,2 millj­arða króna tjóni. Þá kom strax fram í bréfi lög­manns lóð­ar­hafa til rík­is­ins að þessi upp­hæð yrði sótt úr hendi Minja­stofn­un­ar, og því myndi tjónið lenda á rík­is­sjóð­i. 

Auglýsing

Síðar var gert sam­komu­lag milli Minja­stofn­unar og Land­stólpa þar sem ákveðið var að Land­stólpi myndi færa hafn­ar­garð­inn til þess að geta ráð­ist í fram­kvæmd­ir, en að honum yrði svo komið fyrir á sama stað. Í fréttum í des­em­ber síð­ast­liðnum kom fram að gerð yrði krafa vegna þessa á rík­ið. „Við munum sækja okkar rétt í þessu. Við teljum að hann sé alveg skýr í ljósi þess að þeir frið­uðu garð­inn sem er ekki 100 ára. Þannig að þetta endar á skatt­borg­ur­um,“ sagði Gísli Steinar Gísla­son, for­stjóri Land­stólpa þá. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None