Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi

bjarni sigmundur
Auglýsing

Stjórn­ar­flokk­arnir Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur bæta báðir við sig fylgi sam­kvæmt nýrri könnun frétta­stofu 365 miðla. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 27,6 pró­sent fylgi sem er rétt yfir því sem hann fékk í kosn­ing­unum 2013. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 12,8 pró­sent ­fylgi en fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um. Saman myndu stjórn­ar­flokk­arn­ir fá 27 þing­sæti - Sjálf­stæði­flokk­ur­inn 19 og Fram­sókn átta - og því eru þeir nokkuð frá því að halda völdum sem stend­ur.

Píratar mæl­ast sem fyrr langstærsti flokkur lands­ins neð 38,1 pró­sent fylgi. Það myndi tryggja þeim 26 þing­menn og ómögu­legt væri að ­mynda tveggja flokka rík­is­stjórn án aðkomu þeirra miðað við þá nið­ur­stöð­u. P­íratar eru í dag með þrjá þing­menn. Sam­fylk­ingin og Vinstri græn erum með um átta pró­sent fylgi hvort sam­kvæmt könn­un­inni sem myndi tryggja hvorum flokki ­fyrir sig fimm þing­menn. Það er tölu­vert frá kjör­fylgi beggja flokk­anna en þeir ­fengu sam­tals 16 þing­menn 2013, Sam­fylk­ingin níu en Vinstri græn sjö. Björt fram­tíð myndi ekki ná inn manni ef kosið er í dag. Ein­ungis 1,8 pró­sent aðspurðra segir að þeir myndu kjósa flokk­inn.

Kann­anir frétta­stofu 365 miðla sýna oft­ast nið­ur­stöðu sem er frá­brugðin því sem aðrar kann­anir sýna. Í nýj­ustu könnun Gallup, sem birt var í síð­ustu viku, mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til að mynda með 23,7 pró­sent fylg­i og Píratar með 35,9 pró­sent fylgi. Í nýj­ustu könnun MMR, sem gerð var í jan­ú­ar, ­mæld­ist fylgi Pírata hins vegar nær því sem könnun frétta­stofu 365 sýn­ir, eða 37,8 pró­sent. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist þó mun lægra, eða 19,5 ­pró­sent. Mun­ur­inn felst meðal ann­ars í því að mis­mun­andi aðferð­ar­fræði er beitt við gerð kann­an­anna.

Auglýsing

Könnun frétta­stofu 365 miðla var fram­kvæmd þannig að hring­t var  í 1.082 þar til náð­ist í 794 ­sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 8. og 9. mars. Svar­hlut­fallið var 73,4 ­pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. Svar­endur skipt­ust jafnt eft­ir kyni, og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þing­kosn­inga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er lík­leg­ast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er lík­legra að þú myndir kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eða ein­hvern annan flokk? Alls tók 59,3 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None