Fjármálaeftirlitið kærir fyrir brot á bankaleynd vegna fréttar í Morgunblaðinu

Morgunblaðið
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sent kæru til emb­ætt­is­ hér­aðs­sak­sókn­ara vegna fréttar sem birt­ist í Morg­un­blað­inu fyrir ári síðan um að Borgun hafi tekið út rúm­lega 200 millj­ónir króna af reikn­ingi sínum í Spari­sjóði Vest­manna­eyja. Eft­ir­litið telur að um brot á lögum um banka­leynd sé að ræða og hefur kært ótil­greindan aðila fyrir að hafa komið þeim upp­lýs­ingum til Morg­un­blaðs­ins.  Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. Blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina, Stefán Einar Stef­áns­son, er vitni í mál­inu en er ekki kærður í því, líkt og kom upp­runa­lega fram.

Fréttin birt­ist 31. mars í fyrra undir fyr­ir­sögn­inni „700 millj­ónir króna teknar út úr Spari­sjóði Vest­manna­eyja“. Í henni kom einnig fram að Borgun hefði tekið út rúmar 200 millj­ónir króna í því áhlaupi.

Langt síðan eft­ir­litið hefur kært blaða­menn

Auglýsing

Nokkuð langt er síðan að Fjár­mála­eft­ir­litið reyndi að beita ­sér gegn birt­ingu upp­lýs­inga úr banka­kerf­inu í fjöl­miðlum á grund­velli ­banka­leynd­ar. Það gerð­ist síð­ast í ágúst 2013 þegar Kjarn­inn birti í heild sinni skýrslu sem PwC hafði unnið fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið um starf­semi Spari­sjóðs­ins í Kefla­vík, sem þá var gjald­þrota og hafði verið felldur inn í Lands­bank­ann. ­Spari­sjóði Vest­manna­eyja var einnig felldur inn í Lands­bank­ann í fyrra og er því ekki lengur til í þeirri mynd sem hann var þegar umfjöllun Morg­un­blaðs­ins var birt.

Efn­is­at­riði skýrsl­unnar um ­Spari­sjóð­inn í Kefla­vík voru rakin í frétta­skýr­ingu og skýrslan í heild sinn­i birt á vef Kjarn­ans.

Fjár­mála­eft­ir­litið gerð­i ­kröfu um að skýrslan yrði tekin úr birt­ingu vegna upp­lýs­inga sem finna má í skýrsl­unni sem eft­ir­litið telur að eigi ekki erindi við almenn­ing. Í beiðn­i ­eft­ir­lits­ins var m.a. vitnað til laga um banka­leynd. Auk þess gaf Fjár­mála­eft­ir­lit­ið ­sterk­lega í skyn að birt­ing skýrsl­unnar gæti varðað við almenn hegn­ing­ar­lög.

Kæru gegn sex blaða­mönnum var vísað frá

Kjarn­inn hafn­aði beiðn­i ­eft­ir­lits­ins og kom þeim skila­boðum á fram­færi að hann teldi alvar­legt að eft­ir­lits­stofn­un, ­sem starfar í þágu almenn­ings, skuli  gefa það í skyn að fjöl­mið­ill sé að ­ger­ast sekur um brot á hegn­ing­ar­lögum með því að birta skýrslu um starf­semi Spari­sjóðs. Ekki síst vegna afleið­inga sem fall spari­sjóðs­ins hafði fyrir rík­is­sjóð og íbú­a á Suð­ur­nesj­um. Sam­tals þurfti að leggja fram 26 millj­arða króna úr rík­is­sjóð­i ­vegna falls sjóðs­ins og stór hópur fólks­ins á Suð­ur­nesjum missti ævisparn­að s­inn.

Kjarn­inn taldi einnig frá­leitt að birt­ing skýrsl­unnar hefð­i falið í sér lög­brot og benti á að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði áður reynt að hindr­a ­blaða­menn í umfjöllun um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem væru ekki lengur til, vegna birt­ingar á upp­lýs­ingum úr lána­bók Kaup­þings og Glitnis skömmu skömmu eft­ir hrun. Þá var einnig vísað í brot á banka­leynd. Fjár­mála­eft­ir­litið kærði þá alls sex blaða­menn til sér­staks rík­is­sak­sókn­ara ­sem vís­aði frá kæru eft­ir­lits­ins. Blaða­menn­irnir sem um ræðir voru Agn­es Braga­dótt­ir, Þor­björn Þórð­ar­son, Krist­inn Hrafns­son, Egill Helga­son, Guð­mund­ur ­Magn­ús­son og Ingi Freyr Vil­hjálms­son.

I ljósi þess að for­dæmi voru fyrir því að kærum gegn blaða­mönnum á grund­velli banka­leyndar væri vísað frá, og vegna þess að upp­lýs­ing­arnar sem Kjarn­inn birti áttu klárt erindi við almenn­ing, féllst Kjarn­inn og lög­maður hans ekki á rök Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í mál­inu þá hafn­aði hann því að fjar­lægja skýrsl­una af vef sínum og hélt áfram umfjöllun um mál­efni Spari­sjóðs­ins í Kefla­vík. Fyrr­ver­and­i ­spari­sjóðs­stjóri hans var ákærður fyrr í þessum mán­uði fyrir umboðs­svik.

Fjár­mála­eft­ir­litið fylgdi ekki eftir hót­unum sínum um kæru ­gegn Kjarn­an­um.

Fréttin varð upp­færð klukkan 9:30 eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um að blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina væri ekki kærður heldur ótil­greindur aðili sem liggur undir grun um að hafa komið upp­lýs­ing­unum til Morg­un­blaðs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None