Sigmundur Davíð og Anna skrifa samantekt um Wintris

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og eiginkona hans sendu frá sér samantekt í morgun þar sem farið er yfir Wintris málið. Sigmundur kom í viðtal á Bylgjuna í morgun þar sem hann sagðist hafa fórnað eigin hagsmunum í þágu almennings í málinu.

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra birtir á blogg­síðu sinni í morgun langa sam­an­tekt sem hann og Anna S. Páls­dótt­ir, eig­in­kona hans, hafa skrifað um Wintris-­mál­ið. Þar skrifa þau eins konar spurt og svarað um mál­ið. Pistill­inn ber heitið „Hvað snýr upp og niður?". 

Hjónin segja meðal ann­ars að það sé alrangt að Wintris, félag í eigu Önnu, hafi nokkurn tím­ann verið í skatta­skjóli og raunar sé það ekki einu sinni aflands­fé­lag. Félagið hafi alltaf verið skatt­lagt á Ísland­i. 

„Ástæða þess að fjöl­skyldu­arfur Önnu og fjár­fest­ingar eru enn erlendis er fyrst og fremst sú að við töldum ekki æski­legt að eig­in­kona þing­manns og síðar ráð­herra stund­aði fjár­fest­ingar hér á landi á sama tíma, m.a. í íslenskum fyr­ir­tækj­u­m," segja hjón­in. 

Auglýsing

Sið­ferð­is­leg spurn­ing um að segja ekki frá 

Þá und­ir­strika þau að það hefði verið vara­samt að segja frá félag­inu. Það hefði „orkað mjög tví­mælis sið­ferði­lega ef Sig­mundur hefði farið að gera þeim sér­stak­lega grein fyrir því að eig­in­kona sín ætti inni pen­ing hjá föllnu bönk­un­um. Það hefði mátt túlka sem skila­boð um að það ætti að hafa þessar eignir í huga eða verja þær að ein­hverju leyti í viður­eign­inni við kröfu­haf­ana.

Sig­mundur vildi ekki færa vog­un­ar­sjóð­unum vopn í hendur með því að barma sér yfir tapi eig­in­kon­unn­ar. Þess í stað fékk hann í verkið þá sem höfðu verið harð­astir í bar­átt­unni árin á und­an, fólkið sem skildi vand­ann best og hafði reynt að útskýra hann fyrir fyrri stjórn­völd­um, fjöl­miðlum og almenn­ing­i."

Þá segj­ast hjónin alltaf hafa gert ráð fyrir því að upp­lýs­ingar um Wintris hafi verið í gögn­unum sem íslensk stjórn­völd kaupa um aflands­fé­lög. Farið er yfir afstöðu Sig­mundar til kaupa á þessum gögnum og tekið fram að hann sé fylgj­andi því að skatta­yf­ir­völd á Íslandi nýti þær leiðir sem í boði eru til að koma í veg fyrir skatt­svik. 

„Það skipti hins vegar engu máli þar sem skattar hafa alltaf verið greiddir af því á Íslandi og til­vist félags­ins því aldrei verið haldið leyndri fyrir skatta­yf­ir­völd­um. Við höfum aldrei litið á félag Önnu sem aflands­fé­lag, hvað þá félag í skatta­skjóli, enda hafa allir skattar af eign­unum og tekjum af þeim verið greiddir á Íslandi skv. íslenskum skatta­regl­u­m."

Segir hafa fórnað eigin hags­munum fyrir almenn­ing

Sig­mundur var gestur Sig­ur­jóns Magn­úsar Egils­sonar á Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un. Þetta er í þriðja sinn sem Sig­mundur kemur í við­tal um Wintris-­mál­ið; fyrst í for­síðu­við­tali í Frétta­blað­inu, svo í löngu við­tali við Arn­þrúði Karls­dóttur á Útvarpi Sögu og svo nú á Bylgj­unn­i. 

Hann hefur ítrekað neitað frétta­stofu RÚV um við­tal und­an­farna viku og hefur ekki veitt öðrum miðlum en 365 og Útvarpi sögu við­tal. 

Hann segir ekki vera bág staða fyrir sig að þurfa að verj­ast van­traust­til­lögu á Alþingi og seg­ist ekki hafa fundið fyrir meiri stuðn­ing í neinu máli eins og þessu. Það eina sem hafi komið í ljós sé að konan hans sé sam­visku­sam­legur skatt­greið­and­i. 

Þá seg­ist Sig­mundur hafa fórnað eigin hags­munum fyrir almenn­ing. 

Sig­ur­jón spurði Sig­mund hvers vegna Anna hafi geymt pen­ing­ana sína á Tortóla. Sig­mundur segir við­skipta­banka eig­in­konu sinnar ráð­lagt henni að gera þetta.  Þá segir hann að það hefði verið óeðli­legt að segja sam­starfs­fólki sínu frá eignum Önn­u. 

Mér hefði þótt það óeðli­legt ef ég ætti að tala um fjár­mál kon­unnar minn­ar. Hefur ein­hver stjórn­mála­maður gert það?" svar­aði Sig­mund­ur. Varð­andi mögu­lega van­traust­s­til­lögu á þing­inu eftir páska sagði Sig­mund­ur: „Ég vona að þau gugni ekki að koma með þetta van­traust. Þetta er kjörið tæki­færi til að ræða árangur þess­arar rík­is­stjórn­ar." 

Sig­ur­jón spurði Sig­mund líka út í siða­regl­ur, lög­heim­ilið hans og menntun hans. Þá svar­aði Sig­mund­ur: 

„Á páska­degi telur þú upp topp tíu atriði af þeim óhróðri sem hefur verið bor­inn á mig. Það er ekki góð póli­tík að stunda svona let them deny it taktík," sagði Sig­mund­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None