Sigmundur Davíð: „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skattaskjóli“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Dav­íð G­unn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað biðj­ast afsök­unar á þeim ­upp­lýs­ingum sem komið hafa fram vegna eignar hans og eig­in­konu hans á félag­i ­skráð til heim­ilis á aflandseyj­unni Tortóla, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. „Hvorki ég né konan mín höfum átt eignir í skatta­skjóli,“ sagð­i hann í svari við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, á Al­þingi í dag. 

Sig­mundur Davíð hefur ítrekað end­ur­tekið fyrri mál­flutn­ing um að allir skattar hafi verið greiddir vegna félags­ins og að félagið sé í eig­u eig­in­konu hans. Þess vegna hafi honum ekki borið að skrá það í hags­muna­skrán­ingu þing­manna. Eig­in­kona hans hafi aldrei leynt þeim eignum sem eru inni í aflands­fé­lag­inu Wintris og aldrei hagn­ast á því að geyma eign­irnar þar. 

Sig­mundur Davíð hef­ur ekki svarað spurn­ingum um afsögn eða afsök­un­ar­beiðni með beinum hætti það sem af er fyr­ir­spurn­ar­tíma Alþing­is, þrátt fyrir að slíkar spurn­ingar hafi ver­ið marg­ít­rekað verið lagðar fram af þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unn­ar. Hann hef­ur heldur ekki svarað spurn­ingum um hvort hann trúi því virki­lega að svör hans séu þess eðlis að þau bæti þann skaða sem orðið hafi vegna alþjóð­legrar umfjöll­un­ar­ um mál­efni hans.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð seg­ir að hann hafi ekki reynt að skýla sér á bak­við konu sína í þessu máli. Eftir á að hyggja hafi hins vegar verið óhjá­kvæmi­legt að ræða fjár­mál hennar fyrr, þótt að hann hafi haft það sem meg­in­stef að ræða ekki hennar mál­efni opin­ber­lega og í tengslum við stjórn­mála­þát­töku hans. Hann hefur ítrekað neitað því að Tortóla sé skatta­skjól. Skil­grein­ing á slíku sé hvort að við­kom­andi land sé nýtt til að ­fela eignir og kom­ast undan skatt­greiðsl­um. Það hafi hann aldrei gert.

Á lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er að finna lista yfir þau lönd og svæði sem teljast lág­skatta­svæði. Til þess að kom­ast á þann lista þarftekju­skatt­ur af hagn­aði félags, sjóðs eða stofn­un­ar, sem um ræð­ir, að vera lægri en tveir ­þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á félag­ið, sjóð­inn eða ­stofn­un­ina hefði hún verið heim­il­is­föst á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None