Stjórnarformaður RÚV svarar fyrir gagnrýni Bjargar Evu

Formaður stjórnar RÚV vísar gagnrýni Bjargar Evu Erlendsdóttur á bug um siðareglur RÚV. Starfsfólk RÚV setji sér sjálft siðareglur, en ekki stjórnin eða menntamálaráðherra. Björg verður framkvæmdastjóri VG og hættir þá í stjórn RÚV.

Björg Eva og Guðlaugur
Auglýsing

Stjórn Rík­is­út­varps­ins voru kynnt áform starfs­manna að setn­ingu siða­reglna á stjórn­ar­fundi félags­ins í sept­em­ber 2014. Þetta segir Guð­laugur Gylfi Sverr­is­son, for­maður stjórnar RÚV, í til­kynn­ingu sem hann sendi í morgun að til­efni færslu Bjargar Evu Erlends­dóttur, frá­far­andi stjórn­ar­for­manns, og umfjöll­unar fjöl­miðla. Björg Eva sagði að „grimm rit­skoð­un" rík­is­stjórn­ar­full­trúa gagn­vart RÚV frekar en þjón­ustu­samn­ings­ins sjálfs, hafi orðið til þess að hún sam­þykkti hann ekki og að nýjar siða­reglur RÚV hafi ekki verið bornar undir stjórn. 

Stjórnin ánægð með siða­reglur

Guð­laugur segir að á stjórn­ar­fund­inum hafi stjórn­ar­menn lýst yfir ánægju sinni með að starfs­menn settu sér siða­reglur og að eng­inn stjórn­ar­maður hafi sett sig á móti því ferli sem nota átti við samn­ingu siða­reglna sem kynnt var á þeim fundi.

Starfs­fólk Rík­is­út­varps­ins ohf. setji sér sjálft siða­reglur og að það komi skýrt fram í for­mála að nýsam­þykktum siða­regl­um, ann­ari máls­grein: „Í þeim til­gangi að stuðla að fag­legum vinnu­brögð­um, draga úr hættu á hags­muna­á­rekstrum og auka traust setur starfs­fólk Rík­is­út­varps­ins sér siða­regl­ur.“ 

Auglýsing

Stjórn­ar­menn gerðu ekki athuga­semdir

Guð­laugur segir að fram­vinda við vinnu starfs­manna RÚV hafi verið kynnt stjórn í tvígang þar til að drög að siða­reglum í nærri end­an­legri mynd voru lögð fram á stjórn­ar­fundi sem hald­inn var í ágúst 2015. 

„Aldrei voru gerðar athuga­semdir af stjórn­ar­mönnum við vinnu starfs­manna Rík­is­út­varps­ins ohf. að siða­regl­um, á neinum af þeim fundum þar sem stjórn var kynnt inni­hald vænt­an­legra siða­reglna og staða mála," segir í til­kynn­ing­unni. „Hvorki stjórn Rík­is­út­varps­ins ohf. né mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra komu að samn­ingu sið­reglna starfs­manna Rík­is­út­varps­ins ohf., sú vinna var alfarið í höndum starfs­manna sjálfra."

Björg Eva var harð­orð í garð ráð­herra og stjórn­ar­innar í gær og sagð­ist ætla að segja sig úr stjórn­inni á næsta aðal­fundi, síðar í mán­uð­in­um. Við þessu segir Guð­laugur að Björg hafi sagt frá því fyrr á árinu að hún ætl­aði að hætta í stjórn á næsta aðal­fundi Rík­is­út­varps­ins ohf, „enda hafði hún þá tekið við starfi fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs, og taldi setu í stjórn Rík­is­út­vars­ins ohf. ekki fara saman með nýju starfi sínu. Aðrar skýr­ingar á ósk hennar að hætta í stjórn Rík­is­út­varps­ins ohf. eru því nýjar frétt­ir.“

Siða­regl­urnar snúa meðal ann­ars að því að starfs­fólk RÚV, sem sinni umfjöllun um fréttir eða dag­skrár­gerð, taki ekki opin­ber­lega afstöðu í póli­tík eða umdeildum mál­um.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None