Umsvifamikil viðskipti Lofts Jóhannessonar rakin í Panamaskjölunum

Loftur er sagður hafa auðgast á viðskiptum við bandarísku leyniþjónustuna CIA. Hann er tengdur í það minnsta fjórum félögum í þekktum skattaskjólum, samkvæmt umfjöllun Irish Times.

CIA
Auglýsing

Í umfjöllun Irish Times um Panama­skjölin, kemur nafn Lofts Jóhann­es­son, 85 ára gam­als Íslend­ings, sem búsettur er í Banda­ríkj­un­um, ítrekað fyrir vegna félaga sem skráð voru á Panama. Hann er sagður hafa stundað umsvifa­mikla vopna­sölu sem rakin er til leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna CIA. 

Hann er sagður hafa auðg­ast veru­lega, einkum á sjö­unda, átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu ald­ar, þegar leyni­þjón­ustan fjár­magn­aði hern­að­ar­að­gerðir víða um heim gegn komm­ún­ista­stjórnum og upp­gangi komm­ún­ista, eins og það er orðað í umfjöllun Irish Times og heim­ilda sem blaðið vísar til. Sér­stak­lega er hann tengdur við slíkar aðgerðir í Afganist­an.

Loftur gengdi hlut­verki milli­göngu­að­ila í vopna­kaup­um, sam­kvæmt umfjöll­un­inni. Tals­maður hans neitar þessu alfar­ið, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá alþjóða­sam­tökum blaða­manna, ICIJ, sem Irish Times vitnar til. Tals­mað­ur­inn segir Loft ekki hafa tengst CIA, en engar frekar skýr­ingar eru gefnar á því við­skipta­legum umsvifum hans.

Auglýsing

Hernaðaraðgerðir sem bandaríska leyniþjónustan, CIA, kom að í Afganistan, á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, voru umsvifamiklar og umdeildar. Mynd: EPA.

Í gögn­un­um, þar sem lög­mann­stofan Mossack Fon­seca er í forg­unni líkt og í umfjöllun Kjarn­ans og RME á vef Kjarn­ans í gær, segir að Loftur hafi keypt vín­ekru í Frakk­landi og heim­ili á Bar­bados. Hann er tengdur við í það minnsta fjögur félög í Panama­skjöl­un­um, sem eru í þekktum skatta­skjólum á Bresku jóm­frú­areyj­unum og í Panama. Í jan­úar 2015 greiddi hann þús­undir Banda­ríkja­dala til Mossack Fon­seca, að því er segir í umfjöll­un­inni.

Eign­irnar hlaupa á tugum millj­óna Banda­ríkja­dala, og er sér­stak­lega vitnað til eignar á Bar­bados, sem sé sam­bæri­leg þeirri sem Loftur á, sem sé virði 35 millj­óna Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 4,5 millj­örðum króna.

Í bók­inni Íslenskir millj­arða­mær­ing­ar, eftir Pálma Jón­as­son, frétta­mann, frá árinu 2001, er Loftur einn þeirra sem sagður er eiga meira en millj­arð króna í hreinni eign. Hann var á árum áður flug­maður og kom að flug­rekstri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None