Ólafur segist hafa fjárfest fyrir tæplega 350 þúsund evrur í Landsnámssetrinu í Borgarnesi

Ólafur Ólafsson segir að upplýsingar sem Morgunblaðið hafi birt í morgun séu allar opinberar. Hann hafi fjárfest meginþorra 350 þúsund evra í uppbyggingu á eldhúsi á Landnámssetrinu í Borgarnesi.

Ólafur Ólafsson
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, aðal­eig­andi Sam­skipa, segir að upp­lýs­ingar um félög í hans eigu séu opin­ber gögn, þar á meðal félög sem fjallað er um í Morg­un­blað­inu í dag. Ólaf­ur, sem nú afplánar fang­els­is­dóm vegna Al Thani máls­ins, sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar Morg­un­blaðs­ins í dag. 

Í Morg­un­blað­inu kemur fram að Ólafur var með tæpa fjóra millj­arða króna í eigna­stýr­ingu í Lúx­em­borg í gegnum félagið KIMI S.a.r.l. árið 2013. Félagið hefur fjár­fest í hol­lensku félagi og tveimur spænskum fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum árum. Í árs­reikn­ingum Kima kemur fram að félagið hafi keypt íslenskar krónur „á hag­stæðu gengi“ í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans. 

„Árið 2013 lagði KIMI 350 þús­und evrur til fjár­fest­ingar á Íslandi. Megin þorri þeirra fjár­muna fóru til upp­bygg­ingar á eld­húsi og stækk­unar Land­náms­set­urs­ins í Borg­ar­nesi sem við höfum stutt við frá upp­hafi. Það var liður í að styðja við fjöl­breytt menn­ing­ar­líf í Borg­ar­nesi og stuðla að upp­bygg­ingu í sam­fé­lag­in­u,“ segir Ólafur í yfir­lýs­ing­unn­i. 

Auglýsing

Þar seg­ist hann einnig hafa verið búsettur erlendis frá árinu 2005, fyrst í Englandi en svo í Sviss frá 2009. Langstærstur hluti starf­semi hans sé erlend­is. „Ég kem að rekstri fjölda fyr­ir­tækja erlendis sem veita hátt í 2000 manns atvinnu. Þar má nefna nefna félögin KIMI SARL í Lúx­em­borg og Neptune Hold­ing BV í Hollandi sem fjallað er um í Morg­un­blað­inu í dag.

KIMI hefur meðal ann­ars staðið að hjálp­ar­starfi með upp­bygg­ingu á fisk­vinnslu og lönd­un­ar­stöðvum í Sierra Leone í Afr­íku en um er að ræða umfangs­mesta og metn­að­ar­fyllsta þró­un­ar­starf í sjáv­ar­út­vegi í land­inu. Verk­efnið er unnið í sam­starfi við Aur­ora vel­gjörð­ar­sjóð sem konan mín og ég höfum starf­rækt frá árinu 2007,“ skrifar Ólaf­ur. 

Í gegnum félagið Neptune Hold­ing hafi hann fjár­fest í sjáv­ar­út­vegi utan Íslands. „Nefna má fyr­ir­tækið Asia Seafood, sem er með móð­ur­fé­lag á Íslandi og kaupir sjáv­ar­af­urðir af útgerðum við Kyrra­haf­ið, til vinnslu og sölu á mark­aði í Asíu og Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tækið veltir árlega yfir 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala (tæpum 29 millj­örðum króna). Neptune Hold­ing hefur einnig fjár­fest í Lumar Seafood á Spáni sem rekur sér­hæfða verk­smiðju sem fram­leiðir hágæða fisk­rétti og tún­fisk til sölu í Evr­ópu. Þá á Neptune einnig línu­veiði­skipið Ana Barral sem hefur stundað veiðar á Ind­lands­hafi.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None