Starfshópur stjórnvalda mun ræða við orkufyrirtæki um ákvörðun ESA

rafmagnslínur í hvalfirði
Auglýsing

Starfs­hópur fjög­urra ráðu­neyta hefur verið skip­aður til að und­ir­búa við­brögð við nýlegri ákvörðun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, um nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í raf­magns­fram­leiðslu. ESA segir að íslensk stjórn­­völd þurfi að setja lög sem krefj­­ast þess að alltaf sé greitt mark­aðs­verð þegar orku­­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eig­u. ESA kveður einnig á um að íslensk stjórn­­völd verði að end­­ur­­skoða alla gild­andi samn­inga um nýt­ingu nátt­úru­auð­linda til að tryggja að orku­­fyr­ir­tæki greiði mark­aðs­verð það sem eftir lifir af gild­is­­tíma samn­ing­anna. 

Íslensk stjórn­völd hafa verið að móta verk­lag við ákvörðun verðs vegna nýt­ingar nátt­úru­auð­linda, meðal ann­ars vegna raf­orku­fram­leiðslu, á und­an­förnum árum, segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Breyt­ing­arnar sem ESA leggur til myndu festa í sessi þær meg­in­reglur og aðferða­fræði sem hefur verið að mótast, segir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Breyt­ing­arnar gætu tryggt „enn betur að verð sem orku­fyr­ir­tæki greiða fyrir aðgang að auð­lindum í opin­berri eigu sé ákveðið á mark­aðs­for­send­um.“ 

Starfs­hóp­ur­inn mun á næstu vikum ákveða hvort rétt sé að fall­ast á til­mæli eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar og und­ir­búa við­brögð. Þá verður leitað eftir við­ræðum við orku­fyr­ir­tæki vegna áður gerðra samn­inga. 

Auglýsing

Nauð­syn­legt til að tryggja sam­keppni

ESA segir að ráð­staf­an­irnar sem lagðar eru til séu nauð­syn­legar til að tryggja megi sann­­gjarna og virka sam­keppni á íslenska raf­­orku­­mark­aðn­­­um. ESA telur nauð­­syn­­legt að til að tryggja sam­keppni þurfi orku­­fyr­ir­tæki að greiða mark­aðs­verð fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Íslensk stjórn­­völd hafi hins vegar í fjöl­­mörgum til­­vikum veitt orku­­fyr­ir­tækjum aðgang að nátt­úru­auð­lindum til að fram­­leiða raf­­orku úr vatns­­afli eða jarð­varma án þess að nokkur lög­­­gjöf sé til um efni slíkra samn­inga. Það er hvorki skýr laga­­skylda til að fara fram á greiðslu mark­aðs­verðs né opin­ber mæli­kvarði á það hvernig ákvarða eigi end­­ur­­gjald á Ísland­i. 

ESA vill að sett verði lög til að tryggja að öll til­­­færsla nátt­úru­auð­linda vegna raf­­orku­fram­­leiðslu fari fram á mark­aðs­­for­­sendum og að slík kvöð yrði bind­andi fyrir bæði ríki og sveit­­ar­­stjórn­­­ir. 

„Setja þarf lög sem fela í sér að ávallt sé farið fram á greiðslu mark­aðs­verðs þegar orku­­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátturauð­lindir í almanna­eigu. Til að ganga úr skugga um að aðilar njóti jafn­­ræðis þurfa íslensk stjórn­­völd auk þess að hafa skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákvarð­að,” sagði Sven Erik Sved­man, for­­seti Eft­ir­lits­­stofn­unar EFTA, í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None