Ríkisstjórn Íslands samþykkir nýjar siðareglur

Ríkisstjórn Íslands
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti í morgun nýjar siða­regl­ur. Þær ­byggja á siða­reglum sem rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur setti árið 2011 en á þeim hafa verið gerðar „ákveðnar lag­fær­ingar í sam­ræmi við lög um Stjórn­ar­ráð Ís­lands, auk orða­lags­breyt­inga með hlið­sjón af nýjum siða­reglum þnig­manna, einkum er varðar hags­muna­á­rekstra.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá­ ­for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á siða­regl­unum frá því ­sem var hjá síð­ustu rík­is­stjórn eru á fyrstu máls­grein 2. greinar sem var svona: „Ráð­herra ­forð­ast hags­muna­á­rekstra og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín.“ Nú er sú máls­grein svona: „Ráð­herra forð­ast árekstra milli­ al­manna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki á­hrif á störf sín. Tak­ist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Auglýsing

Þá er búið að taka út ­grein sem fjall­aði um sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyr­ir­ ­stjórn­sýsl­una, sem var sett á lagg­irnar í tíð síð­ustu rík­is­stjórn­ar. Nefnd­in var lögð niður í vetur sam­kvæmt frum­varpi þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mund­ar Da­víðs Gunn­laugs­son­ar. Þess í stað á að bera sið­ferði­leg vafa­mál und­ir­ ­for­sæt­is­ráðu­neytið sjálft. 

Sam­hæf­ing­ar­nefnd­in átti að stuðla að því að sið­ferði­leg við­mið væru í hávegum höfð í opin­berum ­störfum og veita stjórn­völdum ráð­legg­ingar um ráð­staf­anir til að koma í veg ­fyrir hags­muna­á­rekstra og spill­ingu. Hún átti líka að stuðla að því að brugð­ist væri með sam­hæfðum hætti við upp­lýs­ingum um brot á siða­reglum eða hættu á spill­ingu hjá rík­inu.

Sig­mundur und­ir­rit­aði ekki nýjar siða­reglur

Sig­­mund­ur Da­víð und­ir­­rit­að­i ekki nýjar ­siða­­reglur fyrir hönd rík­­is­­stjórnar sinnar á meðan að hann sat ­sem for­sæt­is­ráð­herra. Á meðan svo var höfðu siða­regl­­ur, sem síð­­asta rík­­is­­stjórn­ ­setti og nú­ver­andi rík­­is­­stjórn hefur sagst líta til, ekki stjórn­­­sýslu­­leg­t ­­gildi.

Umboðs­­maður Alþing­is, ­sem á að gæta þess sam­­kvæmt lög­­um að stjórn­­­sýslan fari fram í sam­ræmi við ­siða­regl­­urn­­ar, gat því ekki látið í ljós álit sitt á því hvort brotið hafi verið gegn siða­regl­­um.

 Hægt er að lesa nýjar siða­reglur rík­is­stjórnar Íslands hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None